Fréttir

true

Kennarar á Akranesi fjölmenntu á bæjarstjórnarfund

Fundur í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar stendur nú yfir. Fyrir fundinn höfðu kennarar safnast saman við Tónlistarskólann og gengu þaðan fylktu liði í bæjarþingsalinn við Dalbraut 4. Þar afhentu þeir bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ályktun frá félagsmönnum Kennarasambands Íslands sem starfa á Akranesi. Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs tók við ályktuninni fyrir hönd bæjarstjórnar frá Elís Þór Sigurðssyni fulltrúa trúnaðarmanna.…Lesa meira

true

Blúsveisla framundan í Borgarnesi

Næstkomandi laugardag verður blásið til veislu en þá verður Blúshátíð haldin í Borgarnesi, annað árið í röð. Veislan verður á Grillhúsinu í Borgarnesi. „Þrjár hljómsveitir koma fram ásamt því að Bjarni Þór myndlistarmaður á Akranesi verður með sýningu á verkum sínum Rokk á flakki, plötumarkaður verður opinn ásamt því að Gunnar Örn sýnir handsmíðaða kostagripi…Lesa meira

true

Ráðinn fjármálastjóri Eðalfangs

Smári Rúnar Þorvaldsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Eðalfangs en Eðalfang er íslenskt eignarhaldsfélag sem rekur fyrirtæki í matvælaiðnaði, einkum tengd sjávarafurðum. Félagið á m.a. Eðalfisk og Norðanfisk sem sérhæfa sig í vinnslu og dreifingu sjávarafurða, sérstaklega laxaafurða. Smári Rúnar er reynslumikill rekstrarráðgjafi og kemur til Eðalfangs frá Akrar Consult. Áður starfaði hann um árabil hjá…Lesa meira

true

Fengu heiðursviðurkenningu á aðalfundi KFÍA

Seinni hluti aðalfundar Knattspyrnufélags ÍA fór fram mánudaginn 17. febrúar á Jaðarsbökkum. Í ársskýrslu stjórnar kemur fram að tap var á hefðbundinni starfsemi í rekstri á árinu 2024 sem nam rúmlega 34 milljónum króna. Tekjur af sölu leikmanna var um 81 milljón króna og jákvæð niðurstaða var af rekstrinum sem nam um 56 milljónum króna.…Lesa meira

true

Áhugi fyrir að setja upp líkamsrækt á Jaðarsbökkum

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn miðvikudag var reglubundið samtal fulltrúa foreldrafélaga grunnskólanna og ráðsins. Rætt var um ánægju með að endurbætt rými skólanna séu við það að komast í notkun en að enn verði húsnæðisáskoranir í Brekkubæjarskóla fram eftir ári. Fjallað var um fyrirkomulag sundkennslu á unglingastigi og fram kom ósk frá foreldrafulltrúum…Lesa meira

true

Eldri borgarar í heimsókn hjá jafnöldrum í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag lagði félagsfólk í Félagi eldri borgara í Hvalfjarðarsveit land undir fót. Haldið var að morgni í langferðabifreið vestur á Snæfellsnes og tekið hús í Höllinni, nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu Félags eldri borgara í Snæfellsbæ. Áskell Þórisson var með í för og hafði þessi orð um Höllina: „Búið er að gera svo góða aðstöðu…Lesa meira

true

Ragnhildur ráðin í starf þjóðgarðsvarðar

Ragnhildur Sigurðardóttir á Álftavatni hefur verið ráðin í starf þjóðgarðsvarðar Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Ragnhildur staðfesti það í samtali við Skessuhorn. Hún hefur störf 1. mars næstkomandi, þá í hálfu starfi en tekur við starfinu að fullu 1. apríl. Ragnhildur tekur við af Hákoni Ásgeirssyni sem verið hefur þjóðgarðsvörður frá 2022.„Ég hlakka mikið til að feta í fótspor…Lesa meira

true

Frábær sigur hjá UMFG

Kvennalið Ungmennafélags Grundarfjarðar í blaki tók á móti liði Sindra frá Höfn í Hornafirði í íþróttahúsi Grundarfjarðar í gær. Þó svo að gestirnir hafi skorað fyrsta stigið í fyrstu hrinunni þá náðu heimakonur fljótt yfirhöndinni og voru með góða forystu alla hrinuna. Þær sigruðu hana að lokum 25-18 og komust því í 1-0 í leiknum.…Lesa meira

true

Loftlínum fækkað í Reykhólahreppi

Stærstur hluti raflína í Reykhólahreppi er nú kominn í jörð. Í vetur var aftengd loftlína frá Bjarkalundi að Djúpadal. Sú lína var liðlega 10 kílómetrar með heimtaugum að Kinnarstöðum og Gröf. Auk þess var aftengdur sæstrengur yfir Þorskafjörð, rúmlega 1,5 km. Fram kemur á vef Reykhólahrepps að í stað þessarar línu var tengdur jarðstrengur sem…Lesa meira

true

Tíundi sigur Skagamanna í röð

Breiðablik og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var spilað í Smáranum í Kópavogi. Fyrir leik voru Skagamenn í toppsætinu með 28 stig eftir níu sigurleiki í röð en Blikar í því sjöunda með 16 stig eftir tap á móti Sindra í síðustu umferð. Jafnræði var með liðunum fyrstu sex…Lesa meira