Fréttir

true

Kaffihúsakvöld kvenfélagskvenna

Samband borgfirskra kvenna, SBK, var með kaffihúsakvöld fyrir allar kvenfélagskonur í héraði í Skemmunni á Hvanneyri síðastliðið þriðjudagskvöld. „Þetta var skemmtilegt kvöld og góð mæting,“ segir í tilkynningu. „Bjarni Guðmundsson sagði okkur frá sögu mjólkurskólanna á Hvanneyri og Hvítárvöllum sem konur fengu aðgang að rétt eftir aldamótin 1900. Bjarni hefur einmitt skrifað bók um þetta…Lesa meira

true

Fundu Hamborgartréð í Skorradal

Starfsmenn Faxaflóahafna, Sigurður Jökull Ólafsson og Jóhann Páll Guðnason, brugðu undir sig betri fætinum í gær og fóru á jólatrésveiðar alla leið að endimörkum Skorradals. „Eftir langa og mikla göngu um heiðar og skóga uppsveita Borgarfjarðar fundu þeir loks undursamlegt vel vaxið 14 metra sitka greni. Eftir mælingar og úttektir Viktors Steingrímssonar og Arons Snæs…Lesa meira

true

Tryggja þurfi raforku í Dalabyggð

Tryggja verður flutningsgetu á raforku til Dalabyggðar, að mati starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið í Dalabyggð. Að mati hópsins verður það best gert með nýjum jarðstreng frá Stykkishólmi að Glerárskógum, Búðardal,…Lesa meira

true

Það er ekki óskastaða hjá okkur að breyta þessu

Rætt við Sæþór Þorbergsson veitingamann og eiganda Narfeyrarstofu í Stykkishólmi um breytingar sem framundan eru Narfeyrarstofa er einn þekktasti veitingastaður á Vesturlandi. Hjónin Sæþór Þorbergsson og Steinunn Helgadóttir hafa staðið vaktina síðan 2001, þegar þau opnuðu veitingastaðinn. Skessuhorn náði tali af Sæþóri þegar hann var að undirbúa kvöldvakt í síðustu viku. Framundan eru talverðar breytingar…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri í fyrramálið á norðanverðu Snæfellsnesi

Með hvassri og hlýrri sunnanátt í fyrramálið er reiknað með snörpum hviðum á norðanverðu Snæfellsnesi frá um kl. 6 í fyrramálið og til hádegis. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að byljóttur vindur verður einnig norðanlands þegar kemur fram á daginn, sem og á Vestfjörðum og Ströndum. Staðbundnar hviður allt að 35-40 m/s, svo sem utantil…Lesa meira

true

Togast á um framtíð Jaðarsbakkasvæðisins

Í Skessuhorni sem kom út í dag, og hér á vefnum, er að finna tvær aðsendar greinar sem báðar fjalla um Jaðarsbakkasvæðið á Akranesi og framtíðarsýn þess. Óhætt er að segja að þar takist á tvö ólík sjónarmið. Hópur fólks er á bak við báðar greinarnar. Í annarri greininni er bæjarstjórn Akraneskaupstaðar krafin svara við…Lesa meira

true

Þessir staðir eru enn til en þessar sögur og náttúrutengingin eru að týnast

Rætt við Heiði Hörn Hjartardóttur á Bjargi og Bryndísi Fjólu Pétursdóttur, garðyrkjufræðing og völvu um huldufólk, álfa og náttúruna Verkefnið Álfaminni er í höndum Heiðar H. Hjartardóttur en hluti af verkefninu er að safna frásögnum og upplifunum fólks af samskiptum sínum við hulduverur. Bryndís Fjóla gerði slíkt verkefni á Akureyri en það verkefni heitir Huldustígur…Lesa meira

true

Strákarnir unnu hausttvímenning BB

Síðastliðið mánudagskvöld lauk þriggja kvölda hausttvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var á átta borðum. Árangur tveggja bestu kvölda gilti til verðlauna. Fyrir lokakvöldið leiddu Skagamennirnir Viktor Björnsson og Bjarni Guðmundsson mótið. Með öflugri spilamennsku síðasta kvöldið skutu hins vegar strákarnir, Ingimundur Jónsson og Logi Sigurðsson, þeim aftur fyrir sig og unnu með 125,5 stigum.…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar 2024 afhentar í Borgarbyggð

Í dag voru hin árlegu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent við athöfn í Ráðhúsi sveitarfélagsins. Að venju er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem stendur fyrir þessari verðlaunaveitingu og stýrði Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar samkomunni. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi um hvaða garðar, býli eða fyrirtæki/stofnanir verðskulduðu að hljóta verðlaun fyrir árið 2024. Nefndin safnaði saman…Lesa meira