Íþróttir
Ingimundur og Logi spila í Pepsí max deildinni.

Strákarnir unnu hausttvímenning BB

Síðastliðið mánudagskvöld lauk þriggja kvölda hausttvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var á átta borðum. Árangur tveggja bestu kvölda gilti til verðlauna. Fyrir lokakvöldið leiddu Skagamennirnir Viktor Björnsson og Bjarni Guðmundsson mótið. Með öflugri spilamennsku síðasta kvöldið skutu hins vegar strákarnir, Ingimundur Jónsson og Logi Sigurðsson, þeim aftur fyrir sig og unnu með 125,5 stigum. Viktor og Bjarni fengu 121,6 stig. Í þriðja sæti urðu Böðvar Björnsson og Haukur Þórisson á Akranesi með 116,6 stig, fjórðu urðu Hvanneyringarnir Magnús B Jónsson og Flemming Jessen með 114,6 stig og fimmtu Gísli Þórðarson og Ólafur Sigvaldason með 110,2.

Strákarnir unnu hausttvímenning BB - Skessuhorn