Fréttir

true

Önnur prentun af bókinni um Fornahvamm

„Við vorum að koma með aðra prentun af bókinni um Fornahvamm sem kom út í fyrra og seldist upp. Núna er bókin að koma út á kilju,“ segir María Björg Gunnarsdóttir sem skráði og gaf út bókina um Fornahvamm í Norðurárdal. „Viðbrögðin við bókinni hafa verið ótrúlega góð enda staðurinn að hverfa úr hugum landsmanna…Lesa meira

true

STEAM nemendur MB opna listsýningu í Borgarnesi

Í dag var opnuð listsýning í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Það eru nemendur í STEAM áfanga Menntaskóla Borgarfjarðar sem standa að sýningunni. „Sýningin er unnin út frá þemanu náttúruvísindi, sköpun og samfélag og hafa nemendur verið að vinna að sköpun sinni og rannsóknum frá því í byrjun haust. Alls eru 44 nemendur sem voru í…Lesa meira

true

Saltgeymsla skemmdist mikið í rokinu

Saltgeymsla Saltkaupa í Grundarfirði skemmdist mikið í óveðrinu sem gekk yfir í morgun. Björgunarsveitin Klakkur fékk útkall rétt fyrir klukkan hálf ellefu um morguninn eftir að stór vindhviða hafði stórskemmt dúkinn á skemmunni. Lítið annað var að gera í stöðunni en að reyna að fergja allt lauslegt og var fenginn lyftari að láni til að…Lesa meira

true

Útbúa söguleið þar sem saga Stykkishólms hófst

Árið 2021 var tilkynnt um úthlutaða styrki úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða. Þar var tilkynnt að styrkur hafi verið veittur til heildarhönnunar svæðisins við Búðarnes og Hjallatanga í Stykkishólmi með það að markmiði að útbúin verði söguleið um svæðið þar sem saga Stykkishólms hófst. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Minjastofnunar Íslands enda er svæðið ríkt…Lesa meira

true

Ofsaveðri spáð í dag um norðanvert landið

Veðurútlitið í dag hefur versnað á Vestfjörðum og Norðurlandi. Fyrir utan almenna spá um mikla veðurhæð kemur krappa lægðin við Vestfirði til með að slengja inn suðvestan-vindröst yfir norðanverða Vestfirði og Strandir. Allt að 28-32 m/s síðdegis, ofsaveður eða fárviðri og hviður um og yfir 50 m/s.  Í vestanverðum Skagafirði og Eyjafirði eru einnig horfur…Lesa meira

true

Keyptur verður nýr blóðbankabíll

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að veita 50 milljónir króna í kaup á nýjum blóðsöfnunarbíl fyrir Blóðbankann. Landspítalinn mun ráðast í útboð um kaup á bílnum og gert er ráð fyrir að hægt verði að taka hann í notkun fyrri hluta næsta árs. Blóðbankinn er með einn blóðsöfnunarbíl í rekstri. Í fjárfestingaráformum Landspítala hefur…Lesa meira

true

Vel sótt námskeið í skyndihjálp fyrir félaga í FEBAN

Menningar- og fræðslunefnd Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni hefur staðið fyrir skyndihjálparnámskeiði undanfarið fyrir félagsmenn og var það síðasta af þremur haldið seinasta fimmtudag. Námskeiðið er sniðið að þörfum eldri borgara og farið inn á þá þætti sem nýtast þeim í daglegu lífi. Mikil þátttaka hefur verið á þessum þremur námskeiðum og alls…Lesa meira

true

Því fleiri veitingastaðir því betra

Rætt við Örvar Bessason, eigenda Grillhúss Borgarness, um viðburðahald á veitingastaðnum Örvar Bessason flutti fyrst í Borgarnes þegar hann var á fermingaraldri og kláraði grunnskólagöngu sína við Grunnskóla Borgarness, en flutti þá til Hafnarfjarðar. Hann var ráðinn rekstrarstjóri Grillhúss Borgarness en síðar keypti hann veitingastaðinn. Skessuhorn settist niður í lok hádegismatar á veitingastaðnum og náði…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri á morgun

Í kvöld og nótt er spáð vaxandi austanátt og fer að rigna, fyrst sunnan heiða. Á morgun verður sunnan 15-23 m/sek og rigning, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Suðvestan 20-28 m/sek norðan heiða eftir hádegi, en talsvert hægari syðra. Appelsínugul viðvörun er um allt norðanvert landið á morgun…Lesa meira

true

KPMG selur ECIT AS meirihluta í Bókað

Samkomulag hefur tekist um kaup norska fjármála- og tæknifyrirtækisins ECIT AS á meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í byrjun næsta árs en KPMG verður áfram hluthafi. Starfsfólk Bókað telur um 80 manns og sinnir það þjónustu við um 2.000 fyrirtæki…Lesa meira