Fréttir

true

Áhyggjur og bjartsýni í bland á bændafundi

Fjölmennur bændafundur var haldinn í gærkvöldi, föstudaginn 8. nóvember, í félagsheimilinu Þinghamri í Varmalandi. Bændasamtök Íslands hafa staðið fyrir fundaherferð um landið undir yfirskriftinni Á grænu ljósi landbúnaðarins og fundurinn í Varmalandi var sá 11. í röðinni af fjórtán og um leið sá fjölmennasti, en um 70 manns mættu í Þinghamar. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka…Lesa meira

true

Úr sarpi: Á hundasleða um hjarnbreiðuna

Rætt við Unnstein Guðmundsson í Grundarfirði árið 2007 um sauðnautaveiðar á Grænlandi Grundfirðingurinn Unnsteinn Guðmundsson hefur stundað skotveiði síðan hann var nógu gamall til að fara með byssu. Hann hefur farið um allt land til að sinna þessu áhugamáli sínu og er nú farinn að leita út fyrir landssteinana að bráð. Hann fór ásamt tveimur…Lesa meira

true

Öryggisáætlun í jöklaferðum skylda

Öryggisáætlun ferðaþjónustu jöklaferða verður hluti leyfisveitingaferlis, verði tillögur starfshóps ráðuneytisstjóra forsætis-, menningar- og viðskipta-, umhverfis-, orku- og loftlags- og dómsmálaráðuneyta að veruleika. Starfshópurinn, sem skipaður var í kjölfar banaslyss  í jöklaferð á Breiðamerkurjökli í ágúst, hefur nú skilað af sér minnisblaði um málið. Hópurinn kallaði eftir ýmsum gögnum og fundaði með fjölmörgum aðilum, m.a. Borgarbyggð,…Lesa meira

true

Skammhlaup í FVA

Hið árlega Skammhlaup var haldið í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) í gær, fimmtudaginn 7. nóvember. Skammhlaup er árlegur og hefðbundinn íþróttaviðburður sem hófst í skólanum fyrir að minnsta kosti 30 árum samkvæmt fornum annálum. Þá keppa nemendur sín á milli í ýmsum bóklegum og verklegum keppnisgreinum, eins og tungumálaþrautum, stígvélakasti, sippi og söng. Nemendum…Lesa meira

true

Miklar umræður um laxeldi

Ný heimildarmynd, Árnar þagna, eftir Óskar Pál Sveinsson var sýnd í Menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi í gær, fimmtudagskvöldið 7. nóvember. Hún fjallar um áhrif laxeldis á norskar veiðiár og möguleg áhrif á þær íslensku. Myndin er á pólitískri hringferð um landið og kjósendur og frambjóðendur til Alþingis ræða efni hennar. Um hundrað manns mættu í…Lesa meira

true

Trommað í sjö mínútur gegn einelti á Akranesi – Myndir

Í dag, föstudag, er alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti. Af því tilefni komu allir nemendur Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi saman í morgun fyrir framan stjórnsýsluhúsið við Stillholt. Þar trommuðu krakkarnir í alls sjö mínútur, sem er táknrænt fyrir hvern dag vikunnar sem við viljum öll hafa eineltislausan. Nemendur skólanna mynduðu saman hring og inn í…Lesa meira

true

Samstaða kennara í Borgarbyggð

Kennarafélag Íslands hélt baráttufund í Háskólabíói sl. miðvikudag. Ekki áttu allir heimangengt á þann fund og um 40 manns hittust á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi. Mikill hugur var í fólki og samstaða með aðgerðum kennara, sem standa í kjaradeilu við viðsemjendur sína og eru verkfallsaðgerðir víða í gangi. Á fundinum kom fram að kennarar hafa…Lesa meira

true

Skrifuðu undir nýjan samning

Nýverið var undirritaður nýr samningur Hvalfjarðarsveitar við Íslenska gámafélagið og mun því samstarf Íslenska gámafélagsins og sveitarfélagsins halda áfram næstu árin. Samþykkt var á 404. fundi sveitarstjórnar í lok október að taka tilboði Íslenska Gámafélagsins, sem var lægstbjóðandi, og er gildistími samningsins sex ár frá 1. desember nk. Heimilt er, með samþykki beggja aðila, að…Lesa meira

true

Skrafað um skrímsli í Fólkvangi

Sögufélagið Steini á Kjalarnesi býður upp á fyrirlestur og samtal um skrímsli í félagsheimilinu Fólkvangi á morgun, laugardaginn 9. nóvember klukkan 13:00. Yfirskrift viðburðarins er „Hvað býr í djúpinu? Vatnaskrímsli á Íslandi og sjávarskrímsli við Ísland,“ en Þorvaldur Friðriksson, fyrrverandi fréttamaður, flytur þar erindi. Þorvaldur er höfundur bókarinnar Skrímsli í sjó og vötnum á Íslandi,…Lesa meira

true

Þemað er Gleði í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í fimmtánda sinn í ár. Það er menningarnefnd sem heldur utan um keppnina og hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði „Gleði.“ Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2023 til 15. nóvember 2024 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm…Lesa meira