Fréttir

true

Freyja Rós fékk hvatningarverðlaun Dags gegn einelti

Síðasta föstudag afhentu Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Jóhann Gunnarsson formaður Heimili og skóla hvatningarverðlaun Dags gegn einelti við hátíðlega athöfn í Tækniskólanum. Fagráð eineltismála hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum og fyrir valinu varð: Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari, jafnréttisfulltrúi og gæðastjóri við Menntaskólann á Laugarvatni. Í rökstuðningi fagráðs eineltismála hjá Menntamálastofnun…Lesa meira

true

Stækkun gassöfnunarkerfis í Fíflholtum – Skref í átt að grænni framtíð

Sorpurðun Vesturlands hefur samkvæmt kröfum starfsleyfis starfrækt gassöfnunarkerfi á urðunarstað Fíflholta á Mýrum í dreifbýli Borgarness frá byrjun árs 2019. Þar sem áframhald hefur verið á urðun lífræns úrgangs var ákveðið að stækka kerfið til að auka afköst þess enn frekar. Hauggas er samheiti yfir gróðurhúsalofttegundir sem falla til við urðun á lífrænum úrgangi. Gasið…Lesa meira

true

Naumt tap Snæfells á móti Þór Akureyri

Snæfell og Þór Akureyri tókust á í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Stykkishólmi. Fyrir leik var Snæfell án sigurs í fjórum leikjum í röð en Þór hafði unnið sinn fyrsta leik í deildinni í umferðinni á undan gegn Skallagrími. Snæfell byrjaði betur í leiknum og komst í 9:2 og…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir KFG í spennuleik

KFG og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Það var jafnt á flestum tölum í fyrsta leikhluta, staðan var 14:14 um miðja vegu og heimamenn minnkuðu muninn í tvö stig af vítalínunni undir lok hans, staðan 22:24. Áfram var jafnt á milli liðanna…Lesa meira

true

Válynd veður hamla veiðum

Lítið hefur verið róið í síðustu viku í Snæfellsbæ þar sem veður hafa verið válynd en þó hafa bátar sem róið hafa fengið ágætis afla, þegar veður hefur gefið. Veðurspá í vikunni er heldur alls ekki góð til róðrar. Á föstudag, 8. nóvember, gaf til sjósóknar fyrri part dags, en aflinn hjá dragnótabátum var þó…Lesa meira

true

Skagamönnum skellt af KV

KV og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardagskvöldið og var leikurinn á Meistaravöllum. Fyrir leik voru heimamenn með tvo sigra og þrjú töp á meðan gestirnir voru í fjögurra leikja sigurhrinu. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi, eftir rúmar fimm mínútur var staðan 15:13 fyrir KV og við flautið var munurinn…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi

Gul veðurviðröðun er í gildi, en hvasst verður í dag og í kvöld við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Veðurstofu Íslands er spáð sunnan 15-23 m/s og því að vindhviður geti staðbundið farið yfir 30 m/s við fjöll. Það er varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.Lesa meira

true

Lions mælir blóðsykur og selur happdrættismiða í Borgarnesi

Alþjóðadagur sykursjúkra er 14. nóvember. Af því tilefni verður Lionsklúbburinn Agla með blóðsykursmælingu í Borgarnesi dagana 13., 14. og 15. nóvember. „Það verður heilmikið fjör á Hyrnutorgi hjá Lionsklúbbnum Öglu,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum, en þá bjóða Öglukonur ókeypis blóðsykurmælingu til að greina áhættu sykursýki. „Markmið blóðsykurmælinga er að greina hugsanlega sykursýki. Við viljum…Lesa meira

true

FKA kallar eftir tilnefningum

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) kallar eftir fyrir árlega Viðurkenningarhátíð, en hún er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Leitað er tilnefninga af öllu landinu og sérstök áhersla lögð á að fá sem fjölbreyttust nöfn á lista. Frestur til að tilnefna er til og með 21. nóvember nk., en…Lesa meira

true

Fæst telja að starfsstjórn ætti að gefa út leyfi

Um 51 % aðspurðra telja óeðlilegt að ráðherrar í starfsstjórn gefi út nýtt leyfi til veiða á langreyðum. Um 30% telja að það sé eðlilegt, en 19% taka ekki afstöðu til spurningarinnar. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína vann fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók yfir verksvið matvælaráðherra í starfsstjórn þeirri sem…Lesa meira