Fréttir

true

Nokkuð mikið um hraðakstur í umdæminu

Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Þrír ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur og einn til viðbótar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eitt fíkniefnamál kom upp…Lesa meira

true

Kaffihús opnað í Stúkuhúsinu í byrjun desember

Á dögunum var undirritaður samningur milli Byggðasafnsins í Görðum og Díönu Bergsdóttur um rekstur á kaffihúsi í Stúkuhúsinu sem staðsett er í Görðum. Stefnt er að því að opna kaffihúsið sem nefnist Stúkuhúsið Kaffi í byrjun desember næstkomandi. Að sögn Díönu Bergsdóttur eiganda verður opið virka daga á milli 10 og 18 og um helgar…Lesa meira

true

Ragnar & Ásgeir fá tvo nýja bíla í flotann

Flutningafyrirtækið Ragnar & Ásgeir ehf í Grundarfirði hefur fjárfest í tveimur nýjum Volvo flutningabílum í flotann hjá sér. Föstudaginn 8. nóvember mætti flokkur frá Volvo í Svíþjóð og frá Velti sem er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar. Bílarnir eru hinir glæsilegustu og af nýjustu gerð Volvo FH16 með 780 hestafla mótorum. Bílarnir fóru strax í notkun enda…Lesa meira

true

Gul viðvörun er í gildi

Gul veðurviðvörun vegna hvassviðris er í gildi á landinu öllu og stendur fram eftir degi á morgun, en ekki er gert ráð fyrir því að dragi úr vindi fyrr en um 18 á morgun. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands er sunnan og suðvestan hvassviðri eða stormur, 15-25 m/s og búast má við því að…Lesa meira

true

Dreifing sorptunna á Akranesi hafin

Í gær  hófst dreifing sorptunna á heimili á Akranesi. Björgunarfélag Akraness sér um að dreifa nýjum sorptunnum á öll heimili og er áætlað að dreifingu verði lokið fyrir lok nóvember. Björgunarfélagið var á ferðinni í Skógarhverfi, Grundum, Jörundarholti og Flötum í gær og verður einnig í dag. Önnur hverfi á Akranesi verða þjónustuð á næstu…Lesa meira

true

Veiðisögur í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri

Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri Landbúnaðarsafnið hefur fengið til liðs við sig valinkunna sagnamenn sem jafnframt eru miklir veiðimenn og munu þeir segja Veiðisögur í Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri, föstudaginn 15. nóvember kl. 18:00. Órjúfanlegur hluti laxveiða, er að sagðar eru sögur af veiðunum, stóra fiskinum sem slapp, hrakförum (oftast annarra) og ýmsum öðrum uppákomum. Margar þessara sagna…Lesa meira

true

Snæfellskonur með tap á móti Selfossi

Selfoss og Snæfell mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og var leikurinn í Vallaskóla á Selfossi. Heimakonur voru sterkari aðilinn fyrstu mínúturnar en Snæfellskonur komu sér fljótlega inn í leikinn og staðan var 13:11 fyrir Selfossi eftir fimm mínútna leik. Fram að lokum fyrsta leikhluta skiptust liðin á að ná forystu og…Lesa meira

true

Ísak Birkir Íslandsmeistari í keilu

Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót í tvímenningi í keilu. Þar áttu Skagamenn fulltrúa að vanda. Metfjöldi þátttakenda var í forkeppninni sem fór fram á laugardeginum og hófu níu leikmenn frá Keilufélagi Akraness keppni; Matthías Leó og Magnús Sigurjón, Tómas Freyr og Guðmundur, Nína Rut og Jóhanna Nína, Vilborg og Ársæll og Ísak Birkir sem…Lesa meira

true

Fótboltaspurningar 2024 komin út

Í bókinni Fótboltaspurningar 2024, eftir Guðjón Inga Eiríksson, er farið um víðan völl og hér koma nokkur dæmi (svörin eru neðst): 1.  Hvaða lið lék í fyrsta sinn í Bestu deild karla árið 2024? 2. Hverrar þjóðar er William Saliba, leikmaður Arsenal? 3. Hvaða félag í Reykjavík var stofnað 11. febrúar 1988? 4.  Um hvern er fjallað og…Lesa meira

true

Sundfólk frá ÍA stóð sig vel

Tveir Íslandsmeistaratitlar, einn unglingameistaratitill og lágmark á HM var uppskera ÍA á Íslandsmeistaramóti um síðustu helgi. Átta sundmenn frá ÍA tóku þátt á Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi sem fór fram í Hafnarfirði um helgina. Á mótinu voru 174 keppendur frá 10 félögum. Samtals unnu Skagamenn þrjú gull, þrjú silfur og 7 brons. Þá voru…Lesa meira