Skagamenn þurftu að sætta sig við tap eftir fjóra sigurleiki í röð. Ljósm. glh

Skagamönnum skellt af KV

KV og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardagskvöldið og var leikurinn á Meistaravöllum. Fyrir leik voru heimamenn með tvo sigra og þrjú töp á meðan gestirnir voru í fjögurra leikja sigurhrinu. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi, eftir rúmar fimm mínútur var staðan 15:13 fyrir KV og við flautið var munurinn aðeins þrjú stig, 25:22. En í byrjun annars leikhluta má segja að leikmenn KV hafi gert út um leikinn því í stöðunni 30:26 skoruðu þeir 16 stig í röð og voru á eldi á meðan Skagamenn voru í ruglinu. Þeir misstu boltann trekk í trekk og brutu klaufalega af sér oft á tíðum, staðan 46:26 og rétt tæpar fjórar mínútur liðnar þegar Lucien Christofis náði loks að svara fyrir ÍA með körfu. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan frekar vonlítil fyrir gestina, klukkan sýndi 65:41 og ljóst að margt þyrfti að breytast ef þeir ætluðu að fá eitthvað út úr þessum leik.

Skagamönnum skellt af KV - Skessuhorn