
Lið Snæfells er í smá brekku þessa dagana eftir fimm töp í röð. Ljósm. vaks
Naumt tap Snæfells á móti Þór Akureyri
Snæfell og Þór Akureyri tókust á í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Stykkishólmi. Fyrir leik var Snæfell án sigurs í fjórum leikjum í röð en Þór hafði unnið sinn fyrsta leik í deildinni í umferðinni á undan gegn Skallagrími. Snæfell byrjaði betur í leiknum og komst í 9:2 og síðan í 15:6 þegar rúmar átta mínútar voru liðnar. Þá náðu gestirnir 7-1 áhlaupi og staðan 16:13 eftir fyrsta leikhluta. Baráttan hélt áfram í öðrum leikhluta, liðin skiptust á að ná forystu fram að hálfleik og staðan var 36:33 Snæfelli í hag þegar liðin fengu sér hressingu og ræddu málin í hléinu.