Fréttir

true

Mannbjörg þegar bátur strandaði í Súgandafirði í morgun

Klukkan sex í morgun voru björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum kallaðar út á hæsta forgangi vegna fiskibáts sem hafði strandað utarlega í Súgandafirði. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að björgunarbátarnir Stella frá Flateyri, Kobbi Láka frá Bolungarvík og björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði héldu þegar á staðinn, ásamt björgunarsveitinni Björg á Suðureyri, sem sendi björgunarfólk…Lesa meira

true

Ekki góður endir hjá Skagamönnum í Bestu deildinni

Valur og ÍA mættust í síðasta leik tímabilsins í Bestu deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á N1-vellinum á Hlíðarenda. Valsmönnum nægði jafntefli í leiknum til að hreppa Evrópusæti á meðan Skagamenn voru líklegast enn að jafna sig eftir viðureignina gegn Víkingi í síðustu umferð. Heimamenn í Val komust í tveggja marka…Lesa meira

true

Fjölmenni kom saman og minntist Hallgríms Péturssonar

Um nýliðna helgi var þess minnst að 350 ár eru frá andláti séra Hallgríms Péturssonar prests og sálmaskálds sem lengst þjónaði við kirkjuna í Saurbæ. Í ljósi þess að fæðingardagur Hallgríms er ekki þekktur, en hins vegar dánardagur hans 27. október, er nú stefnt að því framvegis að minnast Hallgríms og Guðríðar konu hans sem…Lesa meira

true

Leiðbeiningar um meðhöndlun matvæla vegna E. coli baktería

Í ljósi frétta í síðustu viku um fjölda barna sem eru veik, sum alvarlega, vegna E. coli sýkingar á leikskólum telur Matvælastofnun rétt að árétta nokkur atriði er varða meðhöndlun matvæla, sérstaklega með E. coli í huga. Hvað er E. coli? Til eru margar tegundir kólíbaktería. Þær finnast í þörmum manna og dýra. Sumar tegundir…Lesa meira

true

Segja sporin hræða þegar kemur að aukinni miðstýringu eftirlitsstofnana

Hjá sveitarfélögum landsins er nú til umsagnar tillaga Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra sem fól í sér þá breytingu að færa stjórnsýslu heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkisins. Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er meðal þeirra umsagnaraðila sem mótmælt hafa þeim fyrirætlunum. Sveitarstjórn Borgarbyggðar var með málið til afgreiðslu á fundi sínum 9. október síðastliðinn. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins hafði…Lesa meira

true

Afar vel heppnaður Heima-Skagi

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram í gærkvöldi í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á ferðinni út um allan neðri Skagann langt fram á kvöld. Veðrið var kyrrt og stillt og voru fjölmargir sem tóku röltið þetta kvöld til að hlusta á tónlistarfólk spila á hinum ýmsu stöðum. Undirritaður tók þá ákvörðun að þessu…Lesa meira

true

Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðar til viðgerðar og æfinga

Aðfaranótt fimmtudags kom varðskipið Þór til Grundarfjarðarhafnar og strax um morguninn voru komnir viðgerðamenn um borð til að sinna viðhaldi. Í hádeginu á fimmtudag fengu varðskipsmenn afnot að togaranum Hring SH sem lá við bryggju til að æfa reykköfun. Það þykir góð æfing fyrir mannskapinn að fá að spreyta sig í ókunnum reykfylltum rýmum og…Lesa meira

true

Framboðslisti Miðflokksins kynntur

Nýr framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í lok nóvember var samþykktur í gærkvöldi. Ingibjörg Davíðsdóttir fyrrverandi sendiherra leiðir lista flokksins, Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi þingmaður og ráðhera skipar annað sætið og Sigurður Páll Jónsson sjómaður og fyrrverandi þingmaður þriðja. Fram kom í síðustu viku að Bergþór Ólason þingmaður flokksins mun færa sig…Lesa meira

true

Ingibjörg í oddvitasæti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi

Í kvöld klukkan 20 mun nýr framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í lok nóvember verða kynntur og lagður fram til samþykktar. Í tilkynningu, sem birt er á vef Vísis, kemur fram að uppstillingarnefnd Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi hafi lagt til að Ingibjörg Davíðsdóttir fyrrverandi sendiherra leiði lista flokksins. Ekki er uppgefið hverjir aðrir…Lesa meira

true

Krabbameinsfélag Snæfellsness bauð til samveru

Á Bleika deginum síðastliðinn miðvikudag bauð Krabbameinsfélag Snæfellsness til samveru og viðburðar í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Fullt var út úr dyrum og þurfti hluti gesta að standa á meðan dagskráin fór fram. Guðrún Hrönn Hjartardóttir sagði frá sinni reynslu um krabbamein sem náinn aðstandandi og svo mæðginin Pétur Steinar Jóhannsson og móðir hans Júníana Björg…Lesa meira