Framboðslisti Miðflokksins kynntur

Nýr framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna kosninga til Alþingis í lok nóvember var samþykktur í gærkvöldi. Ingibjörg Davíðsdóttir fyrrverandi sendiherra leiðir lista flokksins, Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi þingmaður og ráðhera skipar annað sætið og Sigurður Páll Jónsson sjómaður og fyrrverandi þingmaður þriðja. Fram kom í síðustu viku að Bergþór Ólason þingmaður flokksins mun færa sig um set og verður oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, Kraganum svokallaða. Við síðustu kosningar hreppti Bergþór jöfnunarþingsætið í NV kjördæmi.

Framboðslisti Miðflokksins kynntur - Skessuhorn