Varðskipsmenn ráðast til atlögu við reykfylltan Hringinn með allan sinn reykkafarabúnað á bakinu. Ljósm. tfk

Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðar til viðgerðar og æfinga

Aðfaranótt fimmtudags kom varðskipið Þór til Grundarfjarðarhafnar og strax um morguninn voru komnir viðgerðamenn um borð til að sinna viðhaldi. Í hádeginu á fimmtudag fengu varðskipsmenn afnot að togaranum Hring SH sem lá við bryggju til að æfa reykköfun. Það þykir góð æfing fyrir mannskapinn að fá að spreyta sig í ókunnum reykfylltum rýmum og tókst æfingin vel. Um kvöldið hélt skipið svo út á fjörð þar sem það æfði með þyrlu Landhelgisgæslunnar í rúmar tvær klukkustundir. Þór kom svo aftur til Grundarfjarðarhafnar og lá við landfestar þar til í gær er það hélt til hafs á ný.

Varðskipið Þór kom til Grundarfjarðar til viðgerðar og æfinga - Skessuhorn