Fréttir

true

Atorkubændur á Stað undir hrauni

Rætt við unga og áhugasama bændur sem tekið hafa við búskap á Staðarhrauni Fyrir um það bil tveimur árum urðu eigendaskipti á bænum Staðarhrauni í Hraunhreppi á Mýrum og ungt par tók þar við búskap. Stór verkefni bíða að kaupunum loknum. Þau langar til að byggja upp húsakost og bæta við þann góða bústofn sem…Lesa meira

true

Enn er hægt að sækja um stuðning í verkefnið Samhugur í Borgarbyggð

Samfélagið í Borgarbyggð tók að þessu sinni afar vel í að leggja verkefninu Samhugur í Borgarbyggð lið, en þetta er fjórða árið í röð sem það er í gangi í aðdraganda jóla. Að sögn Margrétar Katrínar Guðnadóttur, sem er í forsvari fyrir hópinn, hafa nú safnast 3,2 milljónir króna í formi gjafabréfa, peninga, matar og…Lesa meira

true

Ný lög um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga, efla öryggismenningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka alvarlegum atvikum. Einnig að bæta starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna með því að skýra og auka réttaröryggi þeirra. Með lagasetningunni verður unnt að koma fram refsiábyrgð á hendur heilbrigðisstofnunum fremur…Lesa meira

true

Landsvirkjun skerðir raforkuafhendingu til stóriðju á suðvesturlandi

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins; Elkem, Norðuráli og Rio Tinto auk fjarvarmaveitum, að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Þessir notendur hafa ekki sætt skerðingum fyrr á þessum vetri. Skerðingarnar hefjast 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að þær geti staðið allt til 30. apríl. Það fer þó eftir vatnsbúskap á…Lesa meira

true

Köld nótt í Fornahvammi

Nú í haust kom út bókin Fornihvammur í Norðurárdal. Í henni tekur María Björg Gunnarsdóttir saman ýmsan fróðleik um bæinn Fornahvamm sem er fremsti bær í Norðurárdal, uppi undir Holtavörðuheiði. Vegna staðsetningar sinnar var Fornihvammur tengdur samgöngusögu Íslendinga því oft á tíðum þurftu ferðalangar um heiðina að leita þar skjóls á för sinni í ýmsum…Lesa meira

true

Eldur kviknaði í bifreið á björgunaræfingu í ferjunni Baldri

Fimmtudaginn 14. desember fór fram björgunaræfing á Baldri í Stykkishólmi. Nemendur á efsta stigi grunnskólans í Stykkishólmi og kennarar þeirra voru farþegar á æfingunni ásamt nokkrum úr starfshópi Sæferða. Viðstaddir voru einnig fulltrúar frá öryggisdeild Eimskips, Samgöngustofu, Landsbjörgu og Survitec, fyrirtækinu sem þjónustar björgunarbúnaðinn. Alls komu 78 aðilar að æfingunni, ýmist sem þátttakendur eða eftirlitsaðilar.…Lesa meira

true

Jólatónleikar heimamanna vel sóttir

Þeir voru vel sóttir jólatónleikarnir „Er líða fer að jólum“ sem haldnir voru í Dalabúð í Búðardal laugardaginn 9. desember. Þetta er í annað sinn sem tónleikarnir eru haldnir en að baki þeim stendur fjölskyldan á Skerðingsstöðum í Hvammssveit ásamt góðum vinum. „Viðtökurnar í fyrra þegar við héldum þessa tónleika í fyrsta skipti voru framar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um að hús gamla Héraðsskólans nýtist Snorrastofu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti í gær fund í Snorrastofu í Reykholti með Guðveigu Lind Eyglóardóttir forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar, Bergi Þorgeirssyni forstöðumanni Snorrastofu, Þorgeiri Ólafssyni formanni stjórnar Snorrastofu og séra Hildi Björk Hörpudóttir sóknarpresti í Reykholti. Tilefni fundarins var undirritun viljayfirlýsingar á milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Borgarbyggðar og Snorrastofu. Í yfirlýsingunni er lýst…Lesa meira

true

Meistaraskóli FVA hefst 13. janúar næstkomandi

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er nú í boði í fyrsta sinn um langa hríð að innritast í framhaldsnám eftir sveinspróf. Mikil aðsókn er að Meistaraskóla FVA og hefja 37 nemendur námið laugardaginn 13. janúar nk. „Námið er langþráð og spennandi viðbót við fjölbreytt námsframboð skólans,“ segir Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira