Fréttir

true

Sauðafellshlaupið haldið í síðasta sinn

Sauðafellshlaupið var í ár haldið sunnudaginn 18. júní. Var þetta í tíunda og síðasta sinn sem hlaupið er haldið. Rjómabúið Erpsstaðir hefur staðið fyrir hlaupinu frá 2014 en það hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Um 20-40 manns hafa tekið þátt ár hvert, hlaupandi eða gangandi, hver á sínum hraða. Hlaupið er eftir þjóðvegi…Lesa meira

true

Líf í lundi í Álfholtsskógi um helgina

Næsta laugardag og sunnudag verður haldin árleg skógarhátíð í Álfholtsskógi sem er hluti af landsverkefni Skógræktarfélags Íslands sem kallast Líf í lundi. Þetta fellur saman við dagskrá Hvalfjarðardaga að þessu sinni og er hluti af þeim. Skógræktarfélag Skilmannahrepps opnar skóginn fyrir gestum og ýmislegt verður til skemmtunar. Dagskráin hefst á laugardaginn klukkan 12.30 til klukkan 16…Lesa meira

true

Vegaframkvæmdir við Borgarbraut skulu klárar í október

Unnið hefur verið að endurbótum og lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í Borgarnesi síðan í júlí 2022. Verklok eru áætluð í október á þessu ári en það er Þróttur ehf. á Akranesi sem er með verkið. „Vegurinn var orðinn mjög lélegur. Hann hafði verið steyptur á sínum tíma en var orðinn sprunginn og…Lesa meira

true

Landsmót 50+ og Danskir dagar í Stykkishólmi um næstu helgi

Á morgun og fram til 25. júní næstkomandi verður nóg um að vera í Stykkishólmi. Ekki nóg með að þar verður haldið Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri heldur verður einnig á dagskránni bæjarhátíðin Danskir dagar. Fyrsta hátíðin var haldin árið 1994 og er hún ein af elstu bæjarhátíðum á Íslandi. Undirbúningur fyrir…Lesa meira

true

Sendi flöskuskeyti fyrir fjórtán árum frá Stykkishólmi sem fannst á dögunum á Breiðafirði

Fanney Lilja Harðardóttir var ellefu ára í heimsókn hjá ömmu sinni og afa í Stykkishólmi þegar hún sendi flöskuskeyti fyrir fjórtán árum síðan, nánar tiltekið 21. mars árið 2009. Skeytið, sem var kyrfilega lokað inni í gamalli Sprite flösku, fannst nú á dögunum í Fremri-Langey á Breiðafirði en voru það feðginin Hrafntinna Björk Snorradóttir og…Lesa meira

true

VLFA hefur boðað til opins fundar vegna stöðvunar á hvalveiðum

Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til opins fundar á morgun, fimmtudaginn 22. júní, vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um bann við hvalveiðum. Ráðherra gaf út þá ákvörðun sína í gær, þriðjudaginn 20. júní, en hvalvertíðin átti að hefjast í dag, 21. júní. Byggir ráðherra ákvörðun sína á áliti fagráðs um velferð dýra sem Matvælastofnun fékk til…Lesa meira

true

Hundagarður opnaður í Stykkishólmi

Unnið hefur verið að undirbúningi hundagerðis í Stykkishólmi undanfarin ár af hálfu sveitarfélagsins. Umræður um hundagerði voru til að mynda áberandi í umhverfisgöngum bæjarstjóra árin 2019 og 2021 og ljóst að mikill áhugi íbúa var fyrir slíku gerði. Í kjölfar samráðs við íbúa samþykkti bæjarstjórn staðsetningu fyrir hundagerði í Stellulundi, við aðkomuna að Arnarborg. Eftir…Lesa meira

true

Fjárfestu í æfingahjóli fyrir Ölduna

Árið 2021 hjóluðu 18 hjólreiðagarpar og velunnarar Spinnigal Hvanneyrarhringinn til styrktar Öldunnar í Borgarnesi sem býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Stofnunin var á sínum tíma að safna fyrir kaupum á tæki og hugbúnaði sem gerir iðkendum kleift að horfa á ferðaleiðir í sýndarheimi. Þetta verkefni spratt upp eftir að…Lesa meira

true

Óvissa um kornuppskeru í haust

Maímánuður var úrkomusamur á öllu Vesturlandi þetta árið og sólskinsdagar fáir. Það skilur eftir blautan jarðveg og hefur gert bændum víða erfitt fyrir að vinna á túnum sínum. Sigurjón Helgason bóndi á Mel á Mýrum birti mynd af kornakri sínum á Facebook í lok maí. Er akurinn gegnsósa af vatni og segist Sigurjón í samtali…Lesa meira