Fréttir

true

Arnar Þórisson er nýr forstjóri Líflands

Arnar Þórisson hefur verið ráðinn forstjóri Líflands frá og með 1. júlí næstkomandi en þá koma tvö ný einnig inn í framkvæmdastjórn félagsins. Arnar hóf störf hjá Líflandi árið 2013 sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Hann er iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur að mennt og lauk M.Sc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði árið 2011 við Háskólann í Álaborg. Árin 2011-2013,…Lesa meira

true

Norðurálsmótið 2023 komið af stað

Eftir hádegi í dag hófst hið árlega Norðurálsmót á Akranesi og er þetta mót númer 38 í röðinni. 8. flokkur drengja og stúlkna spilar í dag og lýkur keppni um klukkan 17. Í fyrramálið verður mótið sett með skrúðgöngu frá Stillholti klukkan 11 og verður setning í Akraneshöll. Klukkan 12.30 hefst keppni í 7. flokki…Lesa meira

true

Leikskólinn Garðasel formlega vígður

Formleg vígsla á leikskólanum Garðaseli á Akranesi fór fram síðdegis í gær og að henni lokinni var bæjarbúum boðið í opið hús til að skoða leikskólann að innan og að utan. Vígslan hófst á því að útskriftarnemendur Garðasels sungu tvö lög með sínum hætti og drifu sig síðan flest til að mæta á fótboltaæfingu fyrir…Lesa meira

true

Brákarhátíð að hefjast

Á morgun hefst bæjarhátíðin Brákarhátíð í Borgarnesi sem haldin hefur verið árlega síðan 2009 en hátíðin stendur yfir helgina 23.-25. júní. Búast má við að litadýrð verði í bænum en hverfi hafa verið skreytt í mismunandi litum ár hvert og verður sá siður einnig á í ár. Margir viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar en á…Lesa meira

true

Stuð í kofasmíði á sumarnámskeiði

Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í Stykkishólmi í liðinni viku heyrði hann hamarshögg dynja og ákvað að labba á hljóðið. Þar voru krakkar á ævintýranámskeiði sem eru haldin fyrir yngri bekki grunnskólans eftir skólaslit að vori. Námskeiðin eru mjög fjölbreytt; farið er í leiki, hjólatúra, sund, grillað saman og ýmislegt fleira. Krakkarnir á þessu…Lesa meira

true

Mikið um hraðakstur í umdæminu

Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur síðasta fimmtudag. Sá fyrri var tekinn að degi til á móts við Daníelslund í Borgarfirði á 142 kílómetra hraða og sá seinni um nóttina á 146 km hraða. Báðir eiga von á um 150 þúsund krónum í sekt og þremur punktum í ökuferilsskrána. Að sögn lögreglu voru…Lesa meira

true

Víkingur Ó. og Kári fengu Magna og Elliða

Dregið var rétt áðan í Fótbolti.net bikarnum, bikarkeppni neðri deilda, en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt í keppninni. Nokkuð var um óvænt úrslit í fyrstu umferðinni og féllu alls sex lið úr 2. deild úr leik. Vesturlandsliðin Víkingur Ólafsvík og Kári fengu bæði útileik við lið úr 3. deildinni, Víkingur mætir…Lesa meira

true

Vinsamlegast kyssist í Ólafsvík

Nýtt skilti, sem á stendur „Kiss Please“ er komið upp við Kirkjutún í Ólafsvík, til hliðar við regnbogastíginn. Er skiltið gæluverkefni Kristins Jónassonar, bæjarstjóra Snæfellsbæjar, og kom hann skiltinu upp á þriðjudaginn var með dyggri aðstoð frá Matthíasi Páli Gunnarssyni og Vigfúsi Þráni Bjarnasyni. Myndirnar tala sínu máli og nú er kjörið að kyssast þegar…Lesa meira

true

Ný saunatunna við sundlaugina í Grundarfirði

Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní 2023, var tekin í notkun glæsileg saunatunna við sundlaug Grundarfjarðar. Saunan er frábær viðbót fyrir sundlaugargesti en gufuböð eiga að vera mjög heilsusamleg. Gufuböð eru sögð auka virkni ónæmiskerfisins, styrkja hjarta- og æðakerfið, minnka verki, bæta útlit húðar og fleira. Einnig eiga gufuböð að hjálpa til við að losa eiturefni úr…Lesa meira

true

Sveitarstjórnir hvetja ráðherra til að endurskoða ákvörðun sína

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gaf í morgun út yfirlýsingu vegna stöðvunar á hvalveiðum. „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir vonbrigðum og harmar hversu seint ákvörðun matvælaráðherra um tímabundna stöðvun hvalveiða er framkomin, einungis sólarhring áður en hvalveiðar áttu að hefjast og starfsfólk þegar mætt til vinnu. Áhrifin sem þessi fyrirvaralausa og óvænta ákvörðun hefur á samfélagið í Hvalfjarðarsveit og…Lesa meira