
Frá vinstri: Arnar Þórisson, Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir og Halldór Berg Sigfússon. Ljósm. Lífland.
Arnar Þórisson er nýr forstjóri Líflands
Arnar Þórisson hefur verið ráðinn forstjóri Líflands frá og með 1. júlí næstkomandi en þá koma tvö ný einnig inn í framkvæmdastjórn félagsins. Arnar hóf störf hjá Líflandi árið 2013 sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Hann er iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur að mennt og lauk M.Sc í iðnaðar- og rekstrarverkfræði árið 2011 við Háskólann í Álaborg. Árin 2011-2013, gegndi Arnar stöðu framleiðslustjóra hjá Plastprenti.