
Dagný og Líf klipptu á borðann með aðstoð leikskólastjóranna. Ljósm. vaks
Leikskólinn Garðasel formlega vígður
Formleg vígsla á leikskólanum Garðaseli á Akranesi fór fram síðdegis í gær og að henni lokinni var bæjarbúum boðið í opið hús til að skoða leikskólann að innan og að utan. Vígslan hófst á því að útskriftarnemendur Garðasels sungu tvö lög með sínum hætti og drifu sig síðan flest til að mæta á fótboltaæfingu fyrir Norðurálsmótið sem hófst eftir hádegi í dag.