
Framkvæmdir við Borgarbraut hafa staðið yfir í vetur. Þessi mynd er tekin 25. janúar 2023. Ljósm. sþ
Vegaframkvæmdir við Borgarbraut skulu klárar í október
Unnið hefur verið að endurbótum og lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í Borgarnesi síðan í júlí 2022. Verklok eru áætluð í október á þessu ári en það er Þróttur ehf. á Akranesi sem er með verkið.