
Landsmót 50+ og Danskir dagar í Stykkishólmi um næstu helgi
Á morgun og fram til 25. júní næstkomandi verður nóg um að vera í Stykkishólmi. Ekki nóg með að þar verður haldið Landsmót Ungmennafélags Íslands fyrir 50 ára og eldri heldur verður einnig á dagskránni bæjarhátíðin Danskir dagar. Fyrsta hátíðin var haldin árið 1994 og er hún ein af elstu bæjarhátíðum á Íslandi. Undirbúningur fyrir Landsmótið hófst fyrir um ári síðan þegar Landsmóti 50+ lauk í Borgarnesi. Þá hittist framkvæmdanefndin fyrst og svo síðasta haust hittist hópurinn aftur og þá var farið að funda af krafti og undirbúa mótið. Blaðamaður Skessuhorn hitti um miðja síðustu viku í Stykkishólmi keppnisstjórann og tómstunda- og æskulýðsfulltrúa Stykkishólms, Magnús Inga Bæringsson, og segir hann að þetta hafi gengið ljómandi vel til þessa. „Nú reynir á í lokaundirbúningi að hnýta hnúta hér og þar en miðað við þá miklu reynslu sem er innan UMFÍ þá ætti þetta að ganga snurðulaust fyrir sig.“ Í framkvæmdanefndinni eru ásamt Magnúsi þau Gunnhildur Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri HSH og Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson formaður HSH og Snæfells, Garðar Svansson gjaldkeri HSH landsmótsnefndar UMFÍ 50+ og Kristfríður Rós Stefánsdóttir Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Snæfellsbæ. Þá situr Ómar Bragi Stefánsson verkefnastjóri og framkvæmdastjóri Landsmóta UMFÍ einnig í nefndinni og Guðmunda Ólafsdóttir úr varastjórn UMFÍ .