
Jan, Ingvar, Gísli, Jakob Björgvin og Jón Beck opnuðu svæðið. Ljósm. stykkisholmur.is
Hundagarður opnaður í Stykkishólmi
Unnið hefur verið að undirbúningi hundagerðis í Stykkishólmi undanfarin ár af hálfu sveitarfélagsins. Umræður um hundagerði voru til að mynda áberandi í umhverfisgöngum bæjarstjóra árin 2019 og 2021 og ljóst að mikill áhugi íbúa var fyrir slíku gerði. Í kjölfar samráðs við íbúa samþykkti bæjarstjórn staðsetningu fyrir hundagerði í Stellulundi, við aðkomuna að Arnarborg.