
Óvissa um kornuppskeru í haust
Maímánuður var úrkomusamur á öllu Vesturlandi þetta árið og sólskinsdagar fáir. Það skilur eftir blautan jarðveg og hefur gert bændum víða erfitt fyrir að vinna á túnum sínum. Sigurjón Helgason bóndi á Mel á Mýrum birti mynd af kornakri sínum á Facebook í lok maí. Er akurinn gegnsósa af vatni og segist Sigurjón í samtali við Skessuhorn vera svartsýnn á að uppskeran í haust verði af einhverju viti. Hann sáði korni í einn hektara í kringum fjórða maí til þreskingar í haust og bar á. Hann telur nú að hluti af sáðkorninu hafi drepist í bleytunni og áburðurinn líkast til runnið til, jafn vel út í skurði, og nýtist því ekki sem skildi. Staðan um miðjan júní var þó heldur betri eins og sjá má á seinni myndinni sem tekin er föstudaginn 16. júní. Þar sést að kornið er farið að potast upp en er þó gisið. Sigurjón er svartsýnn á að hægt sé að þreskja kornið í haust en sér fyrir sér að hægt sé að slá það í grænfóður.