
Úr Álfholtsskógi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. rþ
Líf í lundi í Álfholtsskógi um helgina
Næsta laugardag og sunnudag verður haldin árleg skógarhátíð í Álfholtsskógi sem er hluti af landsverkefni Skógræktarfélags Íslands sem kallast Líf í lundi. Þetta fellur saman við dagskrá Hvalfjarðardaga að þessu sinni og er hluti af þeim. Skógræktarfélag Skilmannahrepps opnar skóginn fyrir gestum og ýmislegt verður til skemmtunar. Dagskráin hefst á laugardaginn klukkan 12.30 til klukkan 16 og á sunnudaginn frá klukkan 13-16. Það verður margt á boðstólum og er næstum sama dagskrá báða dagana.