Hlaupararnir tilbúnir í slaginn.

Sauðafellshlaupið haldið í síðasta sinn

Sauðafellshlaupið var í ár haldið sunnudaginn 18. júní. Var þetta í tíunda og síðasta sinn sem hlaupið er haldið. Rjómabúið Erpsstaðir hefur staðið fyrir hlaupinu frá 2014 en það hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Um 20-40 manns hafa tekið þátt ár hvert, hlaupandi eða gangandi, hver á sínum hraða. Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585. Á Fellsendabrekkunni er stefnan tekin uppá Sauðafellið. Þar er hlaupið þvert yfir fellið og komið niður hjá bænum Sauðafelli og á ný farið út á þjóðveg 60 þaðan sem hlaupið er eftir veginum að Erpsstöðum. Hlaupaleiðin er rúmir 12 km og tóku 13 hlauparar þátt í ár. Efnilegur hópur göngufólks tók einnig þátt, en 15 manns lögðu af stað gangandi yfir fellið frá Fellsenda, gengu um 8 km leið og enduðu á Erpsstöðum.

Sauðafellshlaupið haldið í síðasta sinn - Skessuhorn