
Úrslitaleikurinn í Fótbolti.net bikarnum verður á Laugardalsvelli í lok september. Ljósm. ksi.is
Víkingur Ó. og Kári komin í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum – Dregið klukkan 11
Í gærkvöldi voru ellefu leikir spilaðir í fyrstu umferð í Fótbolti.net bikarnum í knattspyrnu karla en í honum taka þátt lið úr 2., 3. og 4. deild. Fyrsta umferðin hófst á mánudagskvöldið með fjórum leikjum þar sem Skallagrímur féll úr leik eftir að hafa tapað í vítaspyrnukeppni á móti KFA.