
VLFA hefur boðað til opins fundar vegna stöðvunar á hvalveiðum
Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til opins fundar á morgun, fimmtudaginn 22. júní, vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um bann við hvalveiðum. Ráðherra gaf út þá ákvörðun sína í gær, þriðjudaginn 20. júní, en hvalvertíðin átti að hefjast í dag, 21. júní. Byggir ráðherra ákvörðun sína á áliti fagráðs um velferð dýra sem Matvælastofnun fékk til að meta hvort veiðarnar gætu uppfyllt markmið laga um velferð dýra eftir að Eftirlitsskýrsla MAST, sem barst ráðuneytinu í maí 2023, sýndi að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma. Segir á vef Stjórnarráðsins að álit fagráðsins hafi borist Matvælaráðuneytinu mánudaginn 19. júní og tók ráðherra ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum vegna niðurstöðunnar úr því áliti.
Gagnrýnir stuttan fyrirvara ákvörðunarinnar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er harðorður um ákvörðun ráðherra í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun.
„Að hugsa sér að matvælaráðherra virðist ætla að komast upp með að svipta yfir 150 manns lífsviðurværi sínu fyrirvaralaust með því að banna veiðar og vinnslu á hvalaafurðum. Á mannamáli er matvælaráðherra að reka alla starfsmenn Hvals fyrirvaralaust úr starfi! Ég hef lagst yfir tölur er lúta að tekjum þeirra sem starfa við veiðar og vinnslu hvalaafurða og má klárlega áætla miðað við gögn að verið sé að hafa um 1,2 milljarða tekjur af starfsmönnum Hvals. Starfsmönnum sem voru búnir að ráða sig til vinnu hjá Hval og fjölmargir mættir til starfa. Já, 1,2 milljarða atvinnutekjur hafðar af starfsmönnum vegna gerræðislegrar ákvörðunar matvælaráðherra en rétt er að geta þess að þessir 1,2 milljarðar eru fyrir utan öll afleiddu störfin sem veiðar og vinnsla hvalaafurða skapa. Hvar eru oddvitar Norðvesturkjördæmis? Hvar eru sveitarstjórnarmenn? En sveitarfélögin missa uppundir 200 milljónir af útsvarstekjum fyrir utan margvíslegar tekjur vegna afleiddra starfa. Er það boðlegt að einn ráðherra geti tekið ákvörðun um að svipta yfir 150 fjölskyldur möguleika á góðum tekjum? Hvar er meðalhófið í þessari ákvörðun? Hvar eru t.d. þingmenn Framsóknarflokksins? Er málið þannig að flokkurinn ætli að láta það átölulaust að sjálfbær nýting á auðlindum hafsins sé fótum troðin af einum ráðherra? Hvar eru oddvitar kjördæmisins í ljósi þess að við Akurnesingar þurfum enn og aftur að verða fyrir blóðtöku vegna aðgerðaleysis stjórnmálamanna þegar kemur að atvinnuöryggi bæjarbúa?“ segir í Facebook-færslu Vilhjálms Birgissonar.
Fundurinn fer fram á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi á morgun, fimmtudag, kl: 19:30. Er matvælaráðherra og þingmönnum Norðvesturkjördæmis sérstakega boðið á fundinn.