Fréttir

true

Nú getur fólk sett skatta í greiðsludreifingu

Ný sjálfsafgreiðsluþjónusta á Ísland.is gerir notendum kleift að gera greiðsluáætlun og dreifa greiðslum opinberra gjalda á þeim stað og tíma sem þeim hentar. „Sem dæmi geta notendur sjálfir gert áætlanir um greiðslu flestra gjalda, svo sem skatta og önnur gjöld, undir fjármálum á Ísland.is. Um mánaðamótin verða niðurstöður álagningar einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, birtar…Lesa meira

true

Sæmundur skrifaði Árbók Ferðafélags Íslands

Árbók Ferðafélags Íslands 2022 er komin út og fjallar að þessu sinni um vestasta hluta Snæfellsness; svæðið undir Jökli. Höfundur meginefnis er fræðimaðurinn og leiðsögumaðurinn Sæmundur Kristjánsson í Rifi en Daníel Bergmann skrifar náttúrukafla og tekur langflestar myndirnar. Báðir eiga þeir ættir að rekja til Snæfellsness. Sæmundur starfaði lengi sem hafnarvörður í Rifshöfn og vann…Lesa meira

true

Enn mikið um fuglaflensu í villtum fuglum

Matvælastofnun berast enn margar tilkynningar um veika og dauða villta fugla. Skæð fuglaflensa hefur greinst í mörgum af þeim sýnum sem tekin hafa verið. Stofnunin telur nauðsynlegt að viðhalda enn um sinn þeim sóttvarnaráðstöfunum sem í gildi eru. Á þessu ári hefur Matvælastofnun fengið hátt í fjögur hundruð ábendingar um dauða og veika fugla. Starfsmenn…Lesa meira

true

Flýta útskriftarskírteinum tiltekinna heilbrigðisstarfsmanna

Háskóli Íslands hefur fallist á ósk heilbrigðisráðuneytisins um að flýta útgáfu brautskráningarskírteina þeirra nemenda í læknis,- hjúkrunar- og lyfjafræði sem útskrifast í vor. Þetta er gert svo unnt sé að afgreiða starfsleyfi þessara stétta sem fyrst. Þetta flýtir því um tæpan mánuð að hlutaðeigandi geti ráðið sig til starfa með fullgild réttindi á heilbrigðisstofnunum og…Lesa meira

true

Akrasel fyrsti UNESCO leikskólinn á Íslandi

Á sumarhátíð leikskólans Akrasels á Akranesi síðasta miðvikudag fékk leikskólinn viðurkenningu frá UNESCO og tók á móti sjötta grænfánanum. Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands mætti á svæðið, afhenti viðurkenninguna og dró síðan fána að húni. UNESCO hefur starfrækt samstarfsnet skóla á alþjóðavísu frá árinu 1953 undir sínu nafni. Þeir skólar eru nú um tíu þúsund…Lesa meira

true

Snör viðbrögð björgunarfólks í Hafnarfirði

Snemma í gærmorgun var björgunarsveit í Hafnarfirði kölluð út vegna vélarvana báts sem rak hratt að landi. Einn var um borð í bátnum sem var staddur um 1,5 kílómetra frá landi rétt vestur af Straumsvík. Björgunarbátur frá Hafnarfirði var komin á vettvang um hálftíma eftir að útkall barst og náði áhöfn hans að taka vélarvana…Lesa meira

true

Kynna svæðismark og setja síðan styttu á stall

Á morgun, laugardaginn 28. maí milli kl. 11 og 13, verður kynning á Svæðismarki Snæfellsness í Gestastofunni á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar verður kynnt fyrir sveitastjórnum, sveitarstjórum og öðrum hagaðilum vinnu við Svæðismark Snæfellsness. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt – hvert DNA Snæfellsness…Lesa meira

true

Food Station í Borgarnesi opnað á ný í Borgarnesi

Veitingastaðurinn Food Station við Digranesgötu 4 í Borgarnesi var opnaður að nýju í gær eftir nokkurra vikna lokun. Nú er það Grillhúsið ehf sem mun reka staðinn og gerir það undir nafni Food Station. Formleg opnunarhátíð verður um Hvítasunnuhelgina sem nánar verður kynnt. Að sögn Þórðar Bachmann, annars eiganda Grillhússins, mun staðurinn taka einhverjum breytingum.…Lesa meira

true

Meirihlutasamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í höfn

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akranesi hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar kjörtímabilið 2022 – 2026. Málefnasamningur meirihlutans hefur verið samþykktur en í inngangi hans segir að leitast verði við að eiga gott samstarf við alla flokka í bæjarstjórn og að stjórnsýslan snúist um að veita íbúunum góða þjónustu með…Lesa meira

true

Kári úr leik í Mjólkurbikarnum

FH og Kári mættust á miðvikudaginn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og fór viðureignin fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fyrirfram var búist við auðveldum sigri FH enda þrjár deildir á milli liðanna en önnur varð raunin. Kári varðist með kjafti og klóm í fyrri hálfleik og þó FH væri með mikla yfirburði og töluvert meira…Lesa meira