
Félagsheimilið Breiðablik og Gestastofa.
Kynna svæðismark og setja síðan styttu á stall
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, laugardaginn 28. maí milli kl. 11 og 13, verður kynning á Svæðismarki Snæfellsness í Gestastofunni á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar verður kynnt fyrir sveitastjórnum, sveitarstjórum og öðrum hagaðilum vinnu við Svæðismark Snæfellsness. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt - hvert DNA Snæfellsness er.\r\n\r\nÞá verður boðið upp á ljúffengar veitingar af Snæfellsnesi. Rabarbaramohito með ætum blómum frá Ræktunarstöðinni Lágafelli, Keli vert í Langaholti býður upp á fiskisúpu og skel, Gunnar í Bjargarsteini býður upp á karfaroð og þarasnakk, Hjá góðu fólki býður upp á margrómuðu perutertuna sína og Rúnar Marvinsson sendir „Sæluskot“ sem inniheldur myntu og vallhumal úr túninu heima, mjaðjurt af bökkum Staðarár, blóðberg úr Staðarsveit og hvönn og fræ frá Hellissandi barnað með stjörnuanís, eldpipar og engifer:\r\n\r\nSíðar á morgun, nánar tiltekið klukkan 16, verður svo víðfræg stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur sett að nýju á stall sinn á fæðingarstað hennar á Laugarbrekku á Hellnum. „Upplagt er að slá tvær flugur í einu höggi og mæta á kynningu á Svæðismarki Snæfellsness, og renna svo á Laugarbrekku södd og sæl í góðu veðri - því spáin er góð,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}