Hjúkrunarfræðingur að störfum. Ljósm. Landpósturinn.

Flýta útskriftarskírteinum tiltekinna heilbrigðisstarfsmanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Háskóli Íslands hefur fallist á ósk heilbrigðisráðuneytisins um að flýta útgáfu brautskráningarskírteina þeirra nemenda í læknis,- hjúkrunar- og lyfjafræði sem útskrifast í vor. Þetta er gert svo unnt sé að afgreiða starfsleyfi þessara stétta sem fyrst. Þetta flýtir því um tæpan mánuð að hlutaðeigandi geti ráðið sig til starfa með fullgild réttindi á heilbrigðisstofnunum og er til þess fallið að bæta mönnun á heilbrigðisstofnunum þegar sumarleyfi eru að hefjast. Með þessari ráðstöfun er brugðist við ákalli Landspítala og lyfjaverslana sem þurfa að þjálfa nýútskrifaða heilbrigðisstarfsmenn til nýrra starfa áður en aðrir starfsmenn fari í sumarleyfi.",
  "innerBlocks": []
}
Flýta útskriftarskírteinum tiltekinna heilbrigðisstarfsmanna - Skessuhorn