Guðni Th forseti með grænfánann í hönd. Ljósmyndir: vaks.

Akrasel fyrsti UNESCO leikskólinn á Íslandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á sumarhátíð leikskólans Akrasels á Akranesi síðasta miðvikudag fékk leikskólinn viðurkenningu frá UNESCO og tók á móti sjötta grænfánanum. Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands mætti á svæðið, afhenti viðurkenninguna og dró síðan fána að húni.\r\n\r\nUNESCO hefur starfrækt samstarfsnet skóla á alþjóðavísu frá árinu 1953 undir sínu nafni. Þeir skólar eru nú um tíu þúsund talsins og starfa í 181 landi. Skólarnir eru á leik-, grunn– og framhaldsskólastigi og vinna allir að sameiginlegu markmiði sem er að stuðla að friði. UNESCO-skólar innleiða áherslur samtakanna í kennslu og leik. Þessar áherslur eru heimsborgaravitund, friður, fjölmenning, sjálfbær þróun og gæða menntun. UNESCO-skólar hafa einstakt tækifæri til að tengjast öðrum skólum í samstarfsnetinu um allan heim og taka þátt í fjölþjóðlegum verkefnum. UNESCO–verkefni auka fjölbreytni í kennsluaðferðum og þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðunum. Verkefnin eru þverfagleg og geta því nýst í ýmsum kennslutímum. Þau passa vel inn í grunnþætti aðalnámskráa leik,- grunn- og framhaldsskóla og hafa mikið hagnýtt gildi. Stjórnvöld halda úti heimasíðunni www.heimsmarkmidin.is og þar má nálgast til dæmis þau forgangsmarkmið sem þau hafa sett sér þegar kemur að Heimsmarkmiðunum ásamt upplýsingum um þau verkefni sem þau eru að vinna við.\r\n\r\nLeikskólinn Akrasel hefur unnið á grænni grein (Landvernd) frá opnun leikskólans árið 2008 og tók við sjötta grænfánanum en grænfána vinnan/ umhverfismenntunin er grunnurinn að öllu þeirra starfi. Síðasta ár hafa þau verið að tengja Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna við þeirra starf og kynnt Barnasáttmálann fyrir elsta árgangi leikskólans. Á kynningu sem haldin var fyrir starfsfólk Akrasels um Heimsmarkmiðin kom fram ábending um að þau væru að vinna í anda UNESCO skóla og lagði viðkomandi til að þau myndu sækja um aðild sem þau gerðu haustið 2019. Heimsfaraldurinn tafði afgreiðslu en í desember 2021 barst staðfesting um að Akrasel væri orðinn viðurkenndur UNESCO leikskóli.\r\n\r\nSkessuhorn kíkti á sumarhátíðina í síðustu viku og tók nokkrar myndir af fögnuðinum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53752,53753,53754,53755,53756,53757\"]",
  "innerBlocks": []
}
Akrasel fyrsti UNESCO leikskólinn á Íslandi - Skessuhorn