Starfsfólk Food Station í Borgarnesi. Ljósm. aðsend.

Food Station í Borgarnesi opnað á ný í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Veitingastaðurinn Food Station við Digranesgötu 4 í Borgarnesi var opnaður að nýju í gær eftir nokkurra vikna lokun. Nú er það Grillhúsið ehf sem mun reka staðinn og gerir það undir nafni Food Station. Formleg opnunarhátíð verður um Hvítasunnuhelgina sem nánar verður kynnt. Að sögn Þórðar Bachmann, annars eiganda Grillhússins, mun staðurinn taka einhverjum breytingum. Boðið verður upp á hlaðborð í hádeginu og á kvöldin þar sem til staðar verður kjöt, fiskur og grænmeti. Rómuð kjötsúpa Food Station verður áfram í boði ásamt sjávarréttasúpu hússins. Þórður segir að stefna staðarins sé að bjóða upp á ferska og fljótlega þjónustu í sjálfsafgreiðslu en að öðru leyti sé markmiðið almennt það sama og Grillhússins, þ.e. að bjóða upp á góðan mat og þjónustu á sanngjörnu verði. Við þetta má bæta að á þessu stigi standa ekki til neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi veitingastaðar Grillhússins við Brúartog 6 í Borgarnesi.",
  "innerBlocks": []
}
Food Station í Borgarnesi opnað á ný í Borgarnesi - Skessuhorn