Snör viðbrögð björgunarfólks í Hafnarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snemma í gærmorgun var björgunarsveit í Hafnarfirði kölluð út vegna vélarvana báts sem rak hratt að landi. Einn var um borð í bátnum sem var staddur um 1,5 kílómetra frá landi rétt vestur af Straumsvík. Björgunarbátur frá Hafnarfirði var komin á vettvang um hálftíma eftir að útkall barst og náði áhöfn hans að taka vélarvana bátinn í tog og draga hann til hafnar.\r\n\r\nMikill forgangur var á útkallinu þar sem bátinn rak hratt að landi. Allt gekk þó vel og var hann komin til hafnar klukkutíma eftir að kallað hafði verið eftir aðstoð. Meðfylgjandi mynd frá Landsbjörgu var tekin þegar björgunarbáturinn kemur með bátinn í togi inn í höfnina.",
  "innerBlocks": []
}
Snör viðbrögð björgunarfólks í Hafnarfirði - Skessuhorn