
Sæmundur Kristjánsson með bókina. Ljósm. Snæfellsbær.
Sæmundur skrifaði Árbók Ferðafélags Íslands
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Árbók Ferðafélags Íslands 2022 er komin út og fjallar að þessu sinni um vestasta hluta Snæfellsness; svæðið undir Jökli. Höfundur meginefnis er fræðimaðurinn og leiðsögumaðurinn Sæmundur Kristjánsson í Rifi en Daníel Bergmann skrifar náttúrukafla og tekur langflestar myndirnar. Báðir eiga þeir ættir að rekja til Snæfellsness. Sæmundur starfaði lengi sem hafnarvörður í Rifshöfn og vann við verkstjórn hjá sveitarfélaginu í mörg ár. Samhliða þessu hefur hann veitt ferðamönnum leiðsögn um svæðið. Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi hann Snæfelling ársins árið 2016 fyrir framlag hans til kynningar á sögu og náttúru Snæfellsness.\r\n\r\nFerðafélagið gaf út sína fyrstu árbók árið 1928. Hún hefur síðan komið út árlega í óslitinni röð og er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Í formála Gísla Más Gíslasonar ritstjóra Árbókarinnar nú segir m.a. að Snæfellsnes hafi verið til umfjöllunar áður í þremur eldri bókum félagsins og var það fyrst 1932 þegar fjallað var um allt Nesið að sunnan og norðan. Bókin í ár ber heitið Undir Jökli og undirtitill er Frá Búðum að Ennisfjalli.\r\n\r\nÞess má geta að í lok ávarps síns í upphafi bókarinnar vekur ritstjóri athygli á því að nýtt félag hafi bæst í hóp deilda Ferðafélagsins. Er það Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs sem stofnað var fyrir rúmu ári og birtir nú í fyrsta sinn starfsskýrslu í bókinni.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_53720\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-53720 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Saemundur-skrifar-Arbok-Ferdafelags-Islands-_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Svæðið sem tekið er fyrir í bókinni. Teikning: FÍ.[/caption]",
"innerBlocks": []
}