Nú getur fólk sett skatta í greiðsludreifingu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ný sjálfsafgreiðsluþjónusta á Ísland.is gerir notendum kleift að gera greiðsluáætlun og dreifa greiðslum opinberra gjalda á þeim stað og tíma sem þeim hentar. „Sem dæmi geta notendur sjálfir gert áætlanir um greiðslu flestra gjalda, svo sem skatta og önnur gjöld, undir fjármálum á Ísland.is. Um mánaðamótin verða niðurstöður álagningar einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, birtar á þjónustuvef Skattsins þar sem skattaálagningu síðasta árs er sjálfkrafa dreift á sjö eða þrjá gjalddaga. Vilji notendur breyta þessari dreifingu, er með einföldum hætti hægt að nota nýju þjónustuna til að gera greiðsluáætlun og lækka mánaðarlegar greiðslur eftir greiðslugetu,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Á vef Skattsins geta notendur séð sundurliðun skulda og/eða inneigna hjá ríkissjóði og stofnunum sem og hreyfingar, greiðsluseðla og kvittanir. Nú um mánaðamótin bætast greiðsluáætlanir við það yfirlit og geta einstaklingar þá einnig dreift skuldum sínum sjálfir en stefnt er að því að fyrirtæki geti gert slíkt hið sama síðar á árinu.",
  "innerBlocks": []
}
Nú getur fólk sett skatta í greiðsludreifingu - Skessuhorn