Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar á Akranesi ásamt Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra. F.v. Kristinn Hallur Sveinsson, Líf Lárusdóttir, Ingþór Guðjónsson, Sævar Freyr Þráinsson, Einar Brandsson, Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Valgarður Lyngdal Jónsson.

Meirihlutasamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í höfn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks á Akranesi hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar kjörtímabilið 2022 – 2026. Málefnasamningur meirihlutans hefur verið samþykktur en í inngangi hans segir að leitast verði við að eiga gott samstarf við alla flokka í bæjarstjórn og að stjórnsýslan snúist um að veita íbúunum góða þjónustu með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. „Lögð verður áhersla á gott samstarf við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu og þróun á virku íbúalýðræði. Áfram verður unnið að því að styrkja fjárhagsstöðu bæjarsjóðs,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nVerkaskipting verður með þeim hætti að Líf Lárusdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks verður formaður bæjarráðs. Um leið verður hún yngst til að gegna því embætti frá stofnun kaupstaðarins fyrir réttum 80 árum síðan, en Líf er 30 ára.  Valgarður Lyngdal Jónsson verður forseti bæjarstjórnar. Þá hafa flokkarnir ákveðið að endurnýja samning við Sævar Frey Þráinsson um að gegna starfi bæjarstjóra. Þá mun Samfylkingin fara með formennsku í velferðar- og mannréttindaráði og mennta- og menningarráði en Sjálfstæðisflokkurinn verður með formennsku í skipulags- og umhverfisráði.\r\n\r\n<strong>Sjá málefnasamning flokkanna:</strong>\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Málefnasamningur Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins 2022-2026\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Malefnasamningur-Samfylkingar-og-Sjalfstaedisflokksins-2022-2026.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-53735\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-53736\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Malefnasamningur-Samfylkingar-og-Sjalfstaedisflokksins-2022-2026-pdf-600x777.jpg\" alt=\"thumbnail of Málefnasamningur Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins 2022-2026\" width=\"232\" height=\"300\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Meirihlutasamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í höfn - Skessuhorn