
Aðfararnótt laugardagsins mældist ökumaður í hraðamyndavél við Melahverfi á Vesturlandsvegi á 162 kílómetra hraða. Stuttu síðar hafði bifreiðin hafnað utan vegar við afleggjarann inn í Hvalfjörð en löng hemlaför voru á vettvangi. Í myndavélinni sást að ökumaður hafði keyrt á miðjum veginum áður en hann beygði og þykir mikil mildi að ekki hafi farið verr.…Lesa meira








