Fréttir

true

Flestir völdu sameiningu alls Snæfellsness

Samhliða sveitarstjórnarkosningunum í Eyja- og Miklaholtshreppi á laugardaginn var lögð fram skoðanakönnun meðal íbúa um hug þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Eins og kunnugt er höfnuðu íbúar í kosningu í vetur sameiningu við Snæfellsbæ. Var könnunin nú gerð í samræmi við samþykkt í sveitarstjórn 28. apríl síðastliðinn.  Spurt var: „Ef ný sveitarstjórn tekur upp…Lesa meira

true

Landsmótsúrtaka verður í Borgarnesi í byrjun júní

Úrtaka fyrir Landsmót hestamanna, sem haldið verður á Hellu 3.-10. júlí í sumar, verður sameiginlega haldin fyrir öll hestamannafélögin á Vesturlandi, þ.e. Dreyra, Glað, Borgfirðing og Snæfelling. Fer úrtakan fram laugardaginn 4. júní og sunnudaginn 5. júní á félagssvæði Borgfirðings, við Vindás í Borgarnesi. Keppni hefst báða dagana klukkan 10. Keppt verður í A flokki…Lesa meira

true

Esjuskálinn opnar þar sem Baulan var

Eins og greint var frá í frétt hér á vef Skessuhorns í síðustu viku hefur Haukur Ragnarsson veitingamaður ákveðið að hætta rekstri Baulunnar í Borgarfirði um næstu mánaðamót. Esjuskálinn á Kjalarnesi hefur nú tilkynnt á Facebook síðu sinni að Esjuskálinn verði opnaður innan tíðar í húsnæði Baulunnar. Skeljungur keypti Bauluna í september 2020 og lokaði…Lesa meira

true

Talningu varamanna í Hvalfjarðarsveit lokið

Persónukjör var viðhaft við val nýrrar sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit, þar sem enginn listi bauð fram. Andrea Ýr Arnarsdóttir hlaut langflest atkvæði í kosningunum, tæplega hundrað fleiri en sá sem fékk næstflest atkvæði. Aðalmenn í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar verða þessir: Andrea Ýr Arnarsdóttir, 241 atkvæði Helga Harðardóttir, 148 atkvæði Helgi Pétur Ottesen, 139 atkvæði Inga María Sigurðardóttir,…Lesa meira

true

Andrea Ýr hlaut langflest atkvæði í Hvalfjarðarsveit

Kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit birti nú í morgun niðurstöðu talningar aðalmanna í sveitarstjórn fyrir næsta kjörtímabil. Persónukjör var viðhaft við kosningarnar þar sem enginn listi bauð fram. Fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórninni að talning varamanna fari fram síðar í dag. Andrea Ýr Arnarsdóttir hlaut langflest atkvæði í kosningunum, tæplega hundrað fleiri en sá sem á…Lesa meira

true

Ingibjörg hlaut flest atkvæði í Dalabyggð

Í Dalbyggð var persónukjör líkt og fyrir fjórum árum. Þar hlaut Ingibjörg Þóranna Steinudóttir flest atkvæði. Í frétt hér á vefnum í nótt voru taldir upp níu sem náð höfðu kjöri, en fulltrúar í sveitarstjórn eru sjö. Beðist er velvirðingar á því. Í tilkynningu frá kjörstjórn inni á vef Dalabyggðar eru eftirtaldir aðalmenn í sveitarstjórn:…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn héldu meirihlutanum í Snæfellsbæ

D listi Sjálfstæðisflokks heldur meirihluta sínum og fjórum mönnum í bæjarstjórn eftir að lokatölur lágu fyrir í Snæfellsbæ. J listi bæjarmálasamtaka Snæfellsbæjar fær þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Munaði 48 atkvæðum á framboðunum; D listi hlaut 446 atkvæði en J listi 398. Auðir seðlar og ógildir voru 39. Á kjörskrá voru 1206 og greiddu 883 atkvæði.Lesa meira

true

Framsóknarflokkurinn í meirihluta í Borgarbyggð

Talningu atkvæða er nú lokið í Borgarbyggð. Á kjörskrá voru 2.804 og atkvæði greiddu 2.021 eða 72%. Atkvæði féllu þannig: A listi Samfylkingarinnar og Viðreisnar, 275 atkvæði. B listi Framsóknarflokks, 947 atkvæði. D listi Sjálfstæðisflokks, 484 atkvæði. V Listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, 201 atkvæði. Auðir seðlar voru 93 og ógildir 21. Þetta þýðir að Framsóknarflokkur…Lesa meira

true

D listi Sjálfstæðisflokks og óháðra sigurvegari í Grundarfirði

Í Grundarfirði voru tveir listar í kjöri. Niðurstaðan varð sú að D listi Sjálfstæðisflokks og óháðra hlaut 234 atkvæði og L listi Samstöðu 216 atkvæði (ekki liggur fyrir fjöldi auðra og ógildra atkvæða). Meirihlutinn heldur því velli í Grundarfirði. Bæjarstjóraefni hans er Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri. Á myndinni eru sigurreifir fulltrúar D lista: F.v. Jósef Ólafur Kjartansson…Lesa meira

true

Lokatölur frá Akranesi – Framsókn fær þriðja bæjarfulltrúann á kostnað Sjálfstæðisflokks

Talningu atkvæða er nú lokið á Akranesi. Á kjörskrá voru 5.691. Kjörsókn var 62,8%. Greidd atkvæði voru 3.563 og féllu þau þannig:  B listi Framsóknarflokks og frjálsra 1.208 atkvæði, eða 33,9% og 3 bæjarfulltrúar D listi Sjálfstæðisflokks 1.223 atkvæði, eða 34,32% og 3 bæjarfulltrúar S listi Samfylkingar 959 atkvæði, eða 26,91% og 3 bæjarfulltrúar. Auðir…Lesa meira