Mynd úr safni Skessuhorns fyrir athygli. Hér sýnir Jakob S Sigurðsson Loga frá Oddsstöðum.

Landsmótsúrtaka verður í Borgarnesi í byrjun júní

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Úrtaka fyrir Landsmót hestamanna, sem haldið verður á Hellu 3.-10. júlí í sumar, verður sameiginlega haldin fyrir öll hestamannafélögin á Vesturlandi, þ.e. Dreyra, Glað, Borgfirðing og Snæfelling. Fer úrtakan fram laugardaginn 4. júní og sunnudaginn 5. júní á félagssvæði Borgfirðings, við Vindás í Borgarnesi. Keppni hefst báða dagana klukkan 10. Keppt verður í A flokki gæðinga, B flokki gæðinga, Barnaflokki, Unglingaflokki og Ungmennaflokki. Einungis verður um forkeppni að ræða og því ekki riðið til úrslita.\r\n\r\nFyrri keppnisdaginn verður röð keppnisgreina þessi: Ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, B-flokkur og A-flokkur. Seinni daginn verður röð keppnisgreina þessi: A-flokkur, B-flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur.\r\n\r\nSkráning fer fram um skráningakerfið Sportfeng.com en skráningu þarf að vera lokið fyrir miðnætti miðvikudaginn 31. maí næstkomandi. Skráningargjöld þarf að greiða innan sama tímafrests. Nánari upplýsingar um úrtökumótið má finna á síðum hestamannafélaganna sem í hlut eiga, en nánari upplýsingar um mótið gefa þau Eyþór Gíslason, Ása Hólmarsdóttir, Valberg Sigfússon og Herborg Sigurðardóttir.",
  "innerBlocks": []
}
Landsmótsúrtaka verður í Borgarnesi í byrjun júní - Skessuhorn