
Félagsheimilið Breiðablik og Gestastofa.
Flestir völdu sameiningu alls Snæfellsness
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samhliða sveitarstjórnarkosningunum í Eyja- og Miklaholtshreppi á laugardaginn var lögð fram skoðanakönnun meðal íbúa um hug þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Eins og kunnugt er höfnuðu íbúar í kosningu í vetur sameiningu við Snæfellsbæ. Var könnunin nú gerð í samræmi við samþykkt í sveitarstjórn 28. apríl síðastliðinn. Spurt var: <em>„Ef ný sveitarstjórn tekur upp sameiningaviðræður við nágrannasveitarfélag, hvaða sameiningu viltu þá að sveitarstjórnin leggi áherslu á?“</em> Valkostirnir voru a) Allt Snæfellsnes, b) Stykkishólmsbæ / Helgafellssveit / Grundarfjörður, c) Stykkishólmsbæ / Helgafellssveit og d) Borgarbyggð.\r\n\r\nNiðurstaðan varð sú að langflestir íbúar kusu með sameiningu við allt Snæfellsnes, eða 28. Næst flestir, eða 9, kusu með sameiningu við Stykkishólm/ Helgafellssveit, átta völdu sameiningu við Borgarbyggð og fjórir völdu sameiningu við Grundarfjörð og Stykkishólm/ Helgafellssveit. Auðir seðlar, ógildir og vafaatkvæði voru níu.",
"innerBlocks": []
}