Esjuskálinn opnar þar sem Baulan var

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og greint var frá í frétt hér á vef Skessuhorns í síðustu viku hefur Haukur Ragnarsson veitingamaður ákveðið að hætta rekstri Baulunnar í Borgarfirði um næstu mánaðamót. Esjuskálinn á Kjalarnesi hefur nú tilkynnt á Facebook síðu sinni að Esjuskálinn verði opnaður innan tíðar í húsnæði Baulunnar.\r\n\r\nSkeljungur keypti Bauluna í september 2020 og lokaði staðnum í janúar 2021 í nokkra mánuði, gerði húsnæðið upp og leigði Hauki sem var með reksturinn undir nafni Baulu veitinga ehf. Það er Orkan dótturfélag Skeljungs sem á staðinn núna og eldsneytið er selt undir þeirra nafni.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-53483\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Esjuskolinn-i-Bauluna-600x849.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Esjuskálinn opnar þar sem Baulan var - Skessuhorn