Ók ölvaður á ofsahraða

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Aðfararnótt laugardagsins mældist ökumaður í hraðamyndavél við Melahverfi á Vesturlandsvegi á 162 kílómetra hraða. Stuttu síðar hafði bifreiðin hafnað utan vegar við afleggjarann inn í Hvalfjörð en löng hemlaför voru á vettvangi. Í myndavélinni sást að ökumaður hafði keyrt á miðjum veginum áður en hann beygði og þykir mikil mildi að ekki hafi farið verr. Ökumaðurinn var síðan handtekinn og viðurkenndi fyrir lögreglu að vera undir áhrifum áfengis en hann var síðan fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi til nánari skoðunar. Bíllinn var óökuhæfur og þá á ökumaðurinn von á himinhárri sekt fyrir athæfið.",
  "innerBlocks": []
}
Ók ölvaður á ofsahraða - Skessuhorn