{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur hefur undanfarnar vikur verið í vörslu lögreglunnar á Akranesi þar sem beðið var dómsúrskurðar um hvort heimilt væri að losa hana úr eldflaug sem sett hafði verið utan um hana. Eftir að málið hafði farið fyrir tvö dómsstig fékkst loks leyfi fyrir því að logsjóða botn eldflaugarinnar úr og frelsa styttuna, sem er verk eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara og var tekið ófrjálsri hendi af stalli sínum á Laugarbrekku á Hellnum í liðnum mánuði. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin klukkan þrjú í dag. Þar sést hvar eldflaugin með hinu dýrmæta innihaldi er komin inn á gólf í Vélsmiðjunni Steðja á Akranesi og listakonurnar tvær sem stálu verkinu ræða hér við Helga Pétur Ottesen rannsóknarlögreglumann. Þær voru mættar á staðinn til að hafa eftirlit með aðgerðinni sem fór að þeirra beiðni fram fyrir luktum dyrum. Skessuhorn mun flytja nánari frétt af málinu síðar í dag.",
"innerBlocks": []
}
Guðríður er nú að losna úr prísundinni - Skessuhorn