{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í Reykhólahreppi var sveitarstjórn að þessu sinni kosin í persónukosningu þar sem engir framboðslistar bárust. Á kjörskrá voru 184, en alls greiddu atkvæði 99, þannig að kjörsókn var einungis 53,8%. Auðir og ógildir seðlar voru sex.\r\n\r\n<strong>Í sveitarstjórn voru kjörin:</strong>\r\n\r\nÁrný Huld Haraldsdóttir, 58 atkv.\r\n\r\nJóhanna Ösp Einarsdóttir, 53 atkv.\r\n\r\nHrefna Jónsdóttir, 52 atkv.\r\n\r\nVilberg Þráinsson, 30 atkv.\r\n\r\nMargrét Dögg Sigurbjörnsdóttir, 28 atkv.\r\n\r\n<strong>Varamenn í sveitarstjórn:</strong>\r\n\r\nFyrsti varamaður: Arnþór Sigurðsson\r\n\r\nAnnar varamaður: Rebekka Eiríksdóttir\r\n\r\nÞriðji varamaður: Eggert Ólafsson\r\n\r\nFjórði varamaður: Ingibjörg Birna Erlingsdóttir\r\n\r\nFimmti varamaður: Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir.",
"innerBlocks": []
}
Árný Huld hlaut flest atkvæði í hreppsnefnd - Skessuhorn