Slökkvilið Snæfellsbæjar á vettvangi. Ljósm. af.

Eldur í báti við bryggju í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fimmta tímanum í gær var Slökkvilið Snæfellsbæjar kallað út vegna elds í báti sem bundinn var við bryggju í Ólafsvík. Mikinn reyk lagði þá frá bátnum Rán SH. Magnús Emanúelsson eigandi Ránarinnar var ásamt áhöfn sinni hættur grásleppu veiðum og var fyrirhugað að fara þrjá línuróðra áður en báturinn færi í slipp.\r\n\r\nMagnús segir mestu mildi að ekki fór verr. Sonur hans Emanúel var með nýlega keyptan Sómabát sem lá utan á Rán og var Emanúel á leið um borð í sinn bát og kíkti þá inn í stýrishús Ránarinnar. Var þá allt í himna lagi en þegar Emanúel hafði lokið erindi um borð í sínum báti heyrði hann í eldvarnatæki Ránar og sá þá að allt var fullt af reyk og tók slökkvitækið og bunaði úr því inn í stýrishúsið. „Það munaði því ekki miklu að báðir bátarnir yrðu alelda,“ sagði Magnús, og bætti við að sennilega hafi kviknaði í AIS tækinu um borð. Töluverðar skemmdir urðu á tækjum í stýrishúsi bátsins.",
  "innerBlocks": []
}
Eldur í báti við bryggju í Ólafsvík - Skessuhorn