Fréttir

true

Stóriðjan í erfiðri stöðu

Skerðing Landsvirkjunar á afhendingu rafmagns til stórkaupenda eins og Elkem á Grundartanga hefur haft töluverð áhrif á starfsemi þessara fyrirtækja. Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er ekki góð núna en þetta er eitt erfiðasta vatnsár í sögu Landsvirkjunar í átta ár. Miklir þurrkar síðasta sumar og haust urðu til þess að Þórisvatn fylltist ekki en það…Lesa meira

true

Svartþröstur í sumarskapi

Á meðan við bíðum eftir vorboðanum, lóunni, til að kveða burt snjóinn og lægðirnar sem hafa gengið yfir landið síðustu vikur er svartþröstur á Akranesi kominn í sumarskap. Bjarni Þór Bjarnason listamaður fann þrjú egg í hreiðri ofan á kransi utan á húsinu sínu síðastliðinn laugardag. Því til sönnunar deildi hann á Facebook myndum af…Lesa meira

true

Óskuðu eftir greiningu á flutningi leikskóla á Varmaland

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku óskuðu fulltrúar Framsóknarflokksins, sem sitja í minnihluta, eftir umræðum og greiningu á þeim möguleika að flytja leikskólann á Bifröst á Varmaland síðar á þessu ári þannig að á staðnum yrði samrekinn leik- og grunnskóli. Í bókun sem Magnús Smári Snorrason (S) formaður fræðslunefndar lagði fram á fundinum fyrir…Lesa meira

true

Stefna að stafrænum og skilvirkum stjórnsýslustöðvum sýslumanna

Dómsmálaráðherra hefur hleypt af stokkunum gagngerri endurskoðun á skipulagi sýslumannsembætta landsins meðal annars til að fylgja eftir skýrslu um framtíðarsýn í starfsemi sýslumanna sem ráðuneytið gaf út í mars árið 2021 og til þess að bregðast við skýrslum og úttektum sem gerðar hafa verið á starfsemi og rekstri sýslumannsembættanna undanfarin ár. „Markmiðið er að efla…Lesa meira

true

Víðtæk leit að ferðamanni á hálendinu

Á þriðja hundrað björgunarveitarmenn, þar á meðal frá Vesturlandi, tóku í gærkvöldi þátt í leit að ferðamanni að Fjallabaki, en leitinni lauk rétt fyrir miðnætti. Fyrstu sveitirnar voru kallaðar út klukkan fimm síðdegis eftir að boð barst frá neyðarsendi norðaustur af Mýrdalsjökli. Síðar voru fleiri kallaðar til. Á hálendinu er mikill snjór og víða krapi…Lesa meira

true

Tveir sigrar og eitt tap í Lengjubikarnum

Aðeins þrjú lið af Vesturlandi léku um helgina í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Skallagrímur reið á vaðið á laugardaginn þegar liðið sótti heim KFB í nýju knattspyrnuhöllina Miðgarð í Vetrarmýri í Garðabæ. KFB komst í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum frá Joost Haandrikman og Garðari Geir Haukssyni . Elís Dofri Gylfason minnkaði muninn í 2-1…Lesa meira

true

Hreinsa völlinn til að hægt verði að spila þar heimaleiki

Liðsmenn Guðjóns Þórðarsonar í knattspyrnuliði Víkings Ólafsvíkur hafa ekki getað æft á Ólafsvíkurvelli síðustu mánuði vegna snjóa á vellinum. Í síðustu viku mættu þeir ásamt stjórnarmönnum í félaginu fyrir æfingu til að ryðja völlinn og flýta fyrir því að snjóinn taki upp svo hægt sé að æfa á vellinum og spila heimaleikina sem eftir eru…Lesa meira

true

Gamla þjóðveginum lokað í mánuð

Gamla þjóðveginum sem liggur frá Hausthúsatorgi að Æðarodda á Akranesi var lokað í gær vegna vinnu við lagnir. Hundaeigendum er bent á að fara Æðaroddaleiðina að hundasvæðinu á meðan að vinna stendur yfir. Áætlaður lokunartími er um mánuður. Akraneskaupstaður hvetur alla til þess að sýna aðgát og tillitssemi og virða 30 kílómetra hámarkshraða á svæðinu.Lesa meira

true

Fundur í dag um áburðar- og jarðræktarmál á Snæfellsnesi

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes ætlar í samstarfi við búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi að halda fund í dag í félagsheimilinu Breiðabliki. Þar verður fjallað um áburðar- og jarðræktarmál. Búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi eru í hópi eigenda Svæðisgarðsins og hafa frá upphafi átt fulltrúa í fulltrúaráði garðsins. „Bændur hér á svæðinu hafa tekið virkan þátt í margskonar verkefnum Svæðisgarðsins…Lesa meira

true

Bálhvasst í suðaustan stormi þessa mánudags

Ár og lækir leita upp fyrir hefðbundna farvegi, heyrúllur færast úr stæðum sínum, tré gefa eftir og björgunarsveitir aðstoða bændur við að hefta fok á þakplötum. Þetta er meðal þess sem gengið hefur á um vestanvert landið í dag. Vindhraði fór á nokkrum stöðum á sjötta tug metra á sekúndu í verstu hviðunum og því…Lesa meira