Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Stefna að stafrænum og skilvirkum stjórnsýslustöðvum sýslumanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Dómsmálaráðherra hefur hleypt af stokkunum gagngerri endurskoðun á skipulagi sýslumannsembætta landsins meðal annars til að fylgja eftir skýrslu um framtíðarsýn í starfsemi sýslumanna sem ráðuneytið gaf út í mars árið 2021 og til þess að bregðast við skýrslum og úttektum sem gerðar hafa verið á starfsemi og rekstri sýslumannsembættanna undanfarin ár. „Markmiðið er að efla núverandi starfsemi þannig að úr verði nútímalegar þjónustueiningar, einskonar stjórnsýslustöðvar ríkis í heimabyggð, sem veita framúrskarandi þjónustu, óháð staðsetningu borgarans eða stjórnsýslustöðvarinnar. Framangreind endurskoðun dómsmálaráðherra hefur jafnframt skýra samsvörun við áherslur í byggðamálum, sem koma meðal annars fram í hvítbók um byggðamál, sem var útgefin af samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í maí árið 2021,“ segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.\r\n\r\nFyrirætlanir ráðherra hafa verið kynntar sýslumönnum og áformin tekin til umræðu. Munu ráðherra og starfsmenn ráðuneytisins jafnframt heimsækja öll sýslumannsembættin á næstu vikum til að ræða málin nánar og halda vinnufundi með starfsfólki. Þannig er áætlað að áformin verði unnin í nánu samstarfi við sýslumenn og starfsfólk þeirra.\r\n\r\nMeð breyttu skipulagi telur ráðherra einnig hægara um vik að fela starfsstöðvunum ný verkefni hins opinbera sem snúa að þjónustu við almenning og er undirbúningur þess þegar hafinn hjá ráðuneytinu. Hver starfsstöð verði áfram öflugur vinnustaður í heimabyggð til að þjónusta bæði heimamenn og allt landið, ásamt því að málsmeðferðin verður skilvirkari, samræmdari og vandaðri. Þá skapast sveigjanleiki með innleiðingu nútímalegri stjórnsýsluhátta sem auðveldar starfsfólki að vinna verkefni hvar sem er á landinu og eru því tækifæri fyrir hendi að geta boðið starfsfólki upp á störf án staðsetningar í anda opinberrar stefnu þar um.\r\n\r\nFyrirhugað er að ljúka almennu samráði og undirbúningsvinnu fyrir næsta haustþing og leggja þá fram frumvarp um breytta högun sýslumannsembætta landsins.",
  "innerBlocks": []
}
Stefna að stafrænum og skilvirkum stjórnsýslustöðvum sýslumanna - Skessuhorn