Bálhvasst í suðaustan stormi þessa mánudags

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ár og lækir leita upp fyrir hefðbundna farvegi, heyrúllur færast úr stæðum sínum, tré gefa eftir og björgunarsveitir aðstoða bændur við að hefta fok á þakplötum. Þetta er meðal þess sem gengið hefur á um vestanvert landið í dag. Vindhraði fór á nokkrum stöðum á sjötta tug metra á sekúndu í verstu hviðunum og því ekki að undra að eitthvað láti undan. Löngum var sagt að mánudagar væru til mæðu, það gæti hugsanlega átt við þennan vetur. Lesendum til hugarhægðar er þó bent á að veðrið mun ganga niður þegar líður á kvöldið. Myndin var tekin í höfninni í Ólafsvík fyrr í dag.\r\n\r\n<em>Óveðursmyndir dagsins óskast sendar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is</em>",
  "innerBlocks": []
}
Bálhvasst í suðaustan stormi þessa mánudags - Skessuhorn