Fréttir

true

Snæfell tapaði gegn ÍR og missti af sæti í úrslitakeppninni

Snæfell lék gegn liði ÍR í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á heimavelli ÍR, Hellinum, í Breiðholti. Með sigri í leiknum hefði Snæfell komist í úrslitakeppnina og einnig ef Stjarnan hefði unnið Hamar-Þór. Snæfell. Snæfell var eins og í leikjunum tveimur á undan án síns besta leikmanns, Sianni Martin,…Lesa meira

true

Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi í kvöld

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fer fram í kvöld í Tónbergi og hefst klukkan 19.30. Við athöfnina munu tólf nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla lesa sögur og ljóð. Viktoria Emilia Orlita mun lesa pólskan texta. Dómnefnd mun velja besta upplesara beggja skóla. Þá verða flutt tónlistaratriði af nemendum…Lesa meira

true

Venus kom að nýju með sama farminn

Venus NS, eitt af uppsjávarveiðiskipum Brims, kom í morgun til löndunar á Akranesi í annað skipti með sama farminn. Skipið kom á mánudaginn en þurfti frá að hverfa í fyrrinótt vegna súgs og óláta í Akraneshöfn. Venus þurfti að keyra skrúfur þegar reynt var að halda skipinu upp við bryggju, á meðan á dælingu stóð,…Lesa meira

true

Lá við festar þar til veðrið gekk niður

Það þykir með tíðunum sæta þegar stór flutningaskip liggja við festar á víkinni fyrir framan Ólafsvík. Þar lá á mánudaginn við festar sænska flutningaskipið Sunnanvík, en samkvæmt siglingaleið skipsins hafði það farið suður fyrir Öndverðarnes en snúið svo við og haldið inn á víkina. Skipið er 124 metra langt, 18 metra breitt og 9.100 tonn…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Vesturlandsslaginn

ÍA og Skallagrímur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Það hefur oft verið meira undir en í leiknum í gær því fyrir leikinn voru Skagamenn fallnir í 2. deild og Skallagrímur á lygnum sjó í áttunda sæti í deildinni. Vesturlandsslagurinn snýst þó…Lesa meira

true

Þriggja bíla árekstur á Vatnaleið

Á tíunda tímanum í morgun varð þriggja bíla árekstur á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Dimm él voru á svæðinu og skyggni lítið. Hraði á bílunum var því ekki mikill. Engin slys urðu á fólki en bílarnir allir talsvert skemmdir og óökufærir eftir áreksturinn. Á meðan verið er að fjarlægja bílana eru ökumenn beðnir um að aka…Lesa meira

true

Færeyskt frystiskip með viðkomu í Ólafsvík

Færeyska frysti- og línuveiðiskipið Jogvan 1 frá Toftum í Færeyjum leitaði til hafnar í morgun í Ólafsvík vegna bilunar í beitningarvél. Biðu skipverjar eftir viðgerðarmönnum frá Mustad í Reykjavík, umboðsmönnum beitningarvélanna. Að sögn Bjarta Petersen á Jogvan eru þeir komnir með 100 tonn af fiski um borð og ætla að ná 200 tonnum áður en…Lesa meira

true

Skagamenn á leið í æfingabúðir til Spánar

Leikmenn meistaraflokks ÍA í karlaboltanum halda í æfingaferð til Salou á Spáni á föstudaginn. Jón Þór Hauksson þjálfari liðsins segir að ferðin sé hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið sem nú heitir Besta deildin. Fyrsti leikur Skagamanna verður gegn Stjörnunni í Garðabæ 19. apríl og lýkur þann 17. september á Akranesvelli gegn Leikni Reykjavík. Í…Lesa meira

true

Auglýsa eftir tilboðum í heildarhönnun á nýju íþróttahúsi

Hvalfjarðarsveit hefur óskað eftir tilboðum í heildarhönnun verkfræði- og landslagshönnunar á nýju íþróttahúsi sem á að byggja við íþróttahúsið Heiðarborg. „Tilboð skal fela í sér fullnaðarhönnun verkfræðinga á öllum verkþáttum sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna tilbúna til notkunar auk landslagshönnunar,“ segir í auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Tilboð skal skilað í síðasta lagi kl.…Lesa meira

true

Dansmaraþoni lokið í Reykholti

Fermingarbörn í Borgarbyggð dönsuðu í heilan sólarhring um síðustu helgi og söfnuðu um leið fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu. Auk þess að dansa fengu krakkarnir fermingarfræðslu og kynningu á vatnsverkefninu sem þau voru að safna fyrir. „Og tóku þátt í öllu af heilum hug og hjarta og sýndu kærleika í verki,“ segir á Facebook síðu Reykholtsprestakalls…Lesa meira