Fundur í dag um áburðar- og jarðræktarmál á Snæfellsnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svæðisgarðurinn Snæfellsnes ætlar í samstarfi við búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi að halda fund í dag í félagsheimilinu Breiðabliki. Þar verður fjallað um áburðar- og jarðræktarmál. Búnaðarfélögin þrjú á Snæfellsnesi eru í hópi eigenda Svæðisgarðsins og hafa frá upphafi átt fulltrúa í fulltrúaráði garðsins. „Bændur hér á svæðinu hafa tekið virkan þátt í margskonar verkefnum Svæðisgarðsins frá upphafi og eru áhugasamir enda taka þeir þátt í að velja verkefnin. Það er að þeirra frumkvæði sem við ætlum að halda þennan fund. Við Snæfellingar viljum finna leiðir til að nýta áburðarefni enn betur, bæði með hugmyndafræði hringrásarhagkerfis að leiðarljósi en líka af því að verð á áburði hefur hækkað gríðarlega,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nBorgar Páll Bragason, frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins mun halda erindi um áburð, hvernig megi nýta hann sem best og bendir á leiðir til að styrkja hringrásarkerfið. „Það eru ýmis næringarefni í umhverfi okkar og við ætlum að kafa ofan í það hvar við getum fundið þau hér í nærumhverfi okkar og nýtt þau betur. Kannski mætti nota það sem fellur til í öðrum atvinnugreinum í landbúnaði. Það vill engin borga meira en þarf fyrir tilbúinn áburð sem þarf að flytja inn,“ segir Ragnhildur.\r\n\r\nÞóroddur Sveinsson, deildarforseti við Landbúnaðarháskóla Íslands, mun halda erindi um reynslu og rannsóknir í jarðrækt. Þá mun Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri og bútæknifræðingur, fjalla um möguleika í tækjabúnaði og aðstöðu til að nýta sem best þann búfjár áburð sem fellur til. „Við vitum að það er margt að gerast í löndunum í kringum okkar, tækni fleygir fram og það er ljóst að hér eru ýmis tækifæri sem við þurfum að skoða betur,“ segir Ragnhildur. „Þessi mál verða ekki leyst á einum fundi en ég vona að þarna verði tekið skref að stóru verkefni til að nýta þau næringarefni sem falla til hér á Snæfellsnesi eins vel og hægt er og styrkja þannig hringrásarkerfið okkar enn frekar. Jafningjafræðslan getur verið svo sterk, þegar fólk kemur saman, talar saman og lærir hvert af öðru. Það er fyrsta skrefið til að ná háleitum markmiðum okkar,“ bætir hún við.\r\n\r\nFundurinn hefst klukkan 14:00 í dag í stóra salnum í félagsheimilinu Breiðabliki og er opinn öllum.",
  "innerBlocks": []
}
Fundur í dag um áburðar- og jarðræktarmál á Snæfellsnesi - Skessuhorn