Tjald mannsins þar sem hann fannst á hálendinu. Ljósm. Landsbjörg.

Víðtæk leit að ferðamanni á hálendinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á þriðja hundrað björgunarveitarmenn, þar á meðal frá Vesturlandi, tóku í gærkvöldi þátt í leit að ferðamanni að Fjallabaki, en leitinni lauk rétt fyrir miðnætti. Fyrstu sveitirnar voru kallaðar út klukkan fimm síðdegis eftir að boð barst frá neyðarsendi norðaustur af Mýrdalsjökli. Síðar voru fleiri kallaðar til.\r\n\r\nÁ hálendinu er mikill snjór og víða krapi og því aðstæður erfiðar. Kallaðar voru út sveitir frá Suðurlandi, Suðvesturlandi og Vesturlandi með snjóbíla, breytta jeppa, vélsleða og leitarhunda. Í neyðarboðunum barst ónákvæm staðsetning og því var leitarsvæðið í upphafi nokkuð stórt. Sótt var að svæðinu úr nokkrum áttum og voru fyrstu hópar komnir á vettvang um klukkan átta og hófst þá leit. Fljótlega fjölgaði leitarmönnum og voru hátt í tvö hundruð komnir á vettvang þegar maðurinn fannst klukkan 23:40 um 4,5 kílómetra frá upphaflegri staðsetningu. Ferðamaðurinn var heill á húfi en kaldur og blautur. Björgunarsveitarmenn komu honum í hlý og þurr föt og fluttu hann á vélsleða til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti hann til aðhlynningar í Reykjavík. Voru síðustu björgunarmenn komnir til síns heima klukkan fimm í morgun.",
  "innerBlocks": []
}
Víðtæk leit að ferðamanni á hálendinu - Skessuhorn