Hreinsa völlinn til að hægt verði að spila þar heimaleiki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Liðsmenn Guðjóns Þórðarsonar í knattspyrnuliði Víkings Ólafsvíkur hafa ekki getað æft á Ólafsvíkurvelli síðustu mánuði vegna snjóa á vellinum. Í síðustu viku mættu þeir ásamt stjórnarmönnum í félaginu fyrir æfingu til að ryðja völlinn og flýta fyrir því að snjóinn taki upp svo hægt sé að æfa á vellinum og spila heimaleikina sem eftir eru af Lengjubikarnum. Eitthvað verður þó umhleypingasamt áfram þannig að þeir gætu þurft að moka aftur en best er þó að hreinsa völlinn jafnóðum svo ekki safnist svona mikill snjór sem verður svo að klaka.",
  "innerBlocks": []
}
Hreinsa völlinn til að hægt verði að spila þar heimaleiki - Skessuhorn